Forgangsröðun gæluverkefna
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar, í byrjun febrúar, varsamþykkt að styrkja Garðasókn sem nemur fimmtán milljónum króna úr bæjarsjóði svo kirkjan geti keypt þrjátíu milljóna orgel. Það sem vakti athygli mína sérstaklega er að ekki einn einasti bæjarfulltrúi greiddi atkvæði á móti tillögunni. Þó heyra málefni kirkjunnar ekki undir bæinn heldur ríkið. Það skal þó ekki tekið af fulltrúa M-listans að viðkomandi sat hjá við afgreiðslu málsins, reyndar eftir að hafa í atkvæðagreiðslu stuttu áður lýst því yfir af einstakri snilld að það „að sitja hjá þýddi hið sama og að segja já“. Victor Ingi Olsen
Helstu rökin fyrir því að greiða Garðasókn þessar milljónir virðast vera þau að Garðabær hafi einhvern tímann áður styrkt kirkjuna þegar „einn besti flygill landsins“ var keyptur. Svo virðist sem að um leið og bæjarsjóður kemur að kaupum á hlut á einhvern hátt verði hann iðulega að vera sá besti á landinu og ef ekki það þá flottastur í Skandinavíu - og tökum jafnvel Rússland með.
Það er ekki það að mér sé illa við kirkjuna, af og frá. Það sem truflar mig er þessi ofboðslega eyðslufíkn stjórnmálamanna í verkefni sem geta aldrei, jafnvel í víðasta skilningi, talist til grunnþjónustu.
Ef réttkjörnir bæjarstjórnarmenn telja það nauðsynlegt, til þess að efla „bæjarbrag“ og menningarlíf í bænum að eyða peningum bæjarbúa í annað en telst til grunnþjónustu þá er rétt að spyrja sig hvar nýtt orgel fyrir Vídalínskirkju sé í þeirri röð. Sjálfur tel ég að tugir milljóna ættu að fara annað áður en keypt er orgel enda er kirkjan sjálf fullfær um að ráðstafa sínum tekjum með þeim hætti sem best verður á kosið.
Ætlar enginn bæjarstjórnarmaður í Garðabæ að taka sér stöðu talsmanns skattgreiðenda og mótmæla öllum þeim gæluverkefnum sem greiðast eiga úr bæjarsjóði? Miðað við hótanir Samfylkingarinnar í garð skattgreiðanda verður það seint fulltrúi frá þeim, sama á við um fulltrúa M-listans ef hann ætlar aðhalda áfram að vera „fúll á móti“ og ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að standa í lappirnar og taka þetta að sér... hver þá?
fomaður Hugins félags ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.