Huginn fagnar 35 ára afmæli sínu

Huginn, félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ, fagnar í dag 35 ára afmæli sínu. Á stofnfundi félagsins var fyrsti formaður þess kjörinn Smári Hermannsson. Á fundinum var lýst yfir almennri ánægju með nýtt félag og vonast var til þess að félagið yrði langra lífdaga auðið.
Áherslumál félagsins hafa jafnan fylgt þjóðfélagslegri umræðu hverju sinni. Félagið hefur upplifað tímana tvenna í stjórnmálum og óhætt er að segja að í dag eigi það á brattann að sækja enda hafa nýlegar kannanir leitt í ljós að fylgi Sjálfstæðisflokksins meðal ungs fólks sé sorglega lágt.
Þær efnahagsaðstæður sem ríkja í dag eru sögulegar. Ungt fólk hefur aldrei upplifað efnahagsörðugleika sem þessa. Almenningur sýnir gríðarleg viðbrögð og mótmælt er, misfriðsamlega, á Austurvelli um hverja helgi. Þjóðin hefur sett hnefann í borðið og heimtar breytngar.
Athyglisvert er að þau mál sem sem þjóðin berst fyrir eru lykilmál ungra sjálfstæðismanna. Endurskoðun peningamálastefnunnar og efasemdir um verðmæti íslensku krónunnar eru til dæmis mál sem ungir sjálfstæðismenn hafa fjallað um í mörg ár.
Einnig er athyglisvert að skoða hugsjónir ungra sjálfstæðismanna um frjálsa fjölmiðla. Fyrir örstuttu síðan safnaði SkjárEinn fleiri þúsund undirskriftum með hugsjónir ungra sjálfstæðismanna að vopni, þ.e. að ríkið ætti ekki að reka fjölmiðil í samkeppni við frjálsa fjölmiðla.
Það er engin tilviljun að þau mál sem eru grundvöllur stefnu okkar heyrast hvað hæst í dag og nokkuð kómískt er að heyra þau hrópuð um leið og spjöldum, með ákalli um að senda ránfuglinn burt, er veifað.
Ríkisstjórn Íslands stendur nú frammi fyrir viðamiklum ákvarðanatökum. Það liggur ljóst fyrir að þær munu hafa áhrif til framtíðar. Lántaka ríkisins og hugsanleg aðild að Evrópusambandinu hafa gífurlegar breytingar í för með sér sem snerta komandi kynslóðir. Íslendingar munu þurfa að færa fórnir fyrir framtíðina.
Þær ákvarðanir sem teknar verða á næstu mánuðum geta skipt sköpum fyrir ungt fólk til lengri tíma. Í dag er því einmitt sá tími sem við, ungir sjálfstæðismenn, þurfum að taka höndum saman og vera þátttakendur í að móta framtíð okkar.
Um leið og ég óska Huginn til hamingju með daginn tek ég jafnframt undir þá ósk frá stofnfundi félagsins að því verði enn lengri lífdaga auðið. Ég hvet allt ungt fólk til að taka þátt í að móta framtíð okkar, við erum framtíðin.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.