Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Þú ert númer eitt í röðinni!

Sigríður Dís Guðjónsdóttir, 24. maí 2007

Sjálfstæðisflokkurinn mun á komandi kjörtímabili fá tækifæri til að spreyta sig í nýjum málaflokkum. Þar ber sérstaklega að nefna heilbrigðismálin. Sjálfstæðisflokknum gefst nú gullið tækifæri að láta reyna á aukið einkaframtak í heilbrigðismálum og tækifæri til þess að sýna þjóðinni fram á mikilvægi einkareksturs og frjáls markaðar.  Á undanförnum árum hefur einkarekstur fengið að njóta sín í auknum mæli. Tilgangur einkareksturs er að bæta rekstur fyrirtækja. Reynslan hefur sýnt að einstaklingar eru líklegri en ríkið til að koma auga á hagræðingar í rekstri fyrirtækja og eru þar með líklegri til þess að bæta reksturinn meira en ella. Þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á réttmæti einkarekstur er viðkvæmt að tala um einkarekstur í heilbrigðismálum.  Rekstur spítala og annarra sjúkrastofnana er sama eðlis og allur annar rekstur. Veita þarf sem besta þjónustu á sem hagkvæmastan hátt og til þess eru einkaaðilar best fallnir.  Einkarekstur í heilbrigðisþjónustu er þegar einkaaðilar taka að sér rekstur gegn greiðslu frá ríkinu. Ríkið heldur áfram að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu en ekki koma að eiginlegum rekstri stofnananna. Allir munu hagnast á slíku fyrirkomulagi þar sem augljóst er að þjónustan mun batna, fleiri munu hafa tök á að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu og aðgangur tekjulágra að heilbrigðisþjónustu mun vænkast. Með slíku fyrirkomulagi gefst einnig kostur til þess að veita meira fé í heilbrigðismál en gert er nú þegar þar sem fólk hefur aukið frelsi til að kaupa meiri þjónustu en ríkið hefur möguleika á að veita eins og staðan er í dag.  Einkaaðilar í rekstri finna til ábyrgðar hjá sjálfum sér, ábyrgðar sem mun aldrei snerta ríkið á sama hátt og einstaklinga. Nauðsyn þess að rekstaraðili finni til ábyrgðar er hvergi meiri en í heilbrigðismálum.  Það er velferðarmál að nýta kosti einkaframtaksins og frjáls markaðar.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.