Nýtt afl að útrýma Frjálslyndum

Það er ekki langt síðan rætt var um að Frjálslyndiflokkurinn gæti endað í lykilstöðu að kosningum loknum. Fylgið mældist í tveggja stafa tölum og svo virtist sem staða flokksins væri sterk og traust. Margt vatn hefur runnið til sjávar síðan og fylgið einfaldlega horfið. Ástandið er orðið svo slæmt að útlit er fyrir endalok þingflokks Frjálslyndra, allavega í fjögur ár.
Útspil flokksforystunnar að losa sig við Margréti Sverrisdóttur og hennar fólk virðist vera að koma virkilega í bakið á þeim með slæmum timburmönnum. Þau skipti að losa Margréti burt fyrir Jón Magnússon og hið örsmáa Nýja afl eru skipti sem eru með öllu óskiljanleg. Margrét er engin draumur, en Jón er hrein martröð. Það er einungis tímaspursmál hvenær Nýtt afl gengur endanlega frá Frjálslyndum.
Annars á þetta ekki að koma okkur á óvart. Sagan hefur sýnt að flokkar sem verða til einungis vegna eins málaflokks eða málstaðar endast ekki. Frjálslyndir hafa byggt fylgi sitt á óánægju hluta almennings með kvótakerfið og spunnið síðan málefnaskrá í öðrum málaflokkum eftir vindum. Á bakvið flokkinn liggur engin sameiginleg hugsjón eða stefna, markmiðið er eingöngu að vera á móti ríkjandi stjórnvöldum og núgildandi fiskveiðistjórnun.
Það sama á við um framboð hinnar svokölluðu Íslandshreyfingar. Þar er óánægja með virkjunarmál eina sameiginlega tengingin. Útkoman er sundurleitur hópur og veikt framboð. Þeir sem kjósa hið nýja framboð Margrétar og Ómars eru einfaldlega að kjósa nýjan Frjálslyndaflokk. Þeirra framboð er framboð án hugsjónar eða stefnu í öllum málaflokkum nema einum. Þar koma saman baráttumenn í umhverfismálum, úthýstir pólitíkusar og fræg andlit. Ég trúi því ekki að þjóðin láti blekkjast og kasti atkvæði sínu í sorpið í öllum málaflokkum nema einum. Látum Frjálslyndaflokkinn okkur að kenningu verða.
Ég mun allavega setja mitt x við D í vor.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.