Draumabærinn

Samkvæmt nýlegri könnun viðskiptatímaritsins Vísbendingar er Garðabær besta sveitarfélag Íslands. Þetta kemur að sjálfsögðu fáum Garðbæingum á óvart enda hafa bæjarbúar ávallt getað verið stoltir af því að búa í þessu frábæra sveitarfélagi. Samkvæmt könnunni var Seltjarnarnes í öðru sæti og Kópavogur í því þriðja. Merkilegast við þessa könnun fannst mér vera það Sjálfstæðisflokkurinn er við stjórnvölinn í öllum þessum þremur sveitarfélögum. Þetta hlýtur að vera merki þess að Sjálfstæðisflokkurinn standi framar öðrum í sveitarstjórnarmálum.
Garðabær hefur ávallt verið fyrirmynd annarra sveitarfélaga á flestum sviðum, sem dæmi má
nefna að álögur á íbúa eru með þeim lægstu á landinu og útsvarið eitt af þeim lægstu á höfuðborgarsvæðinu og vel fyrir neðan miðju ef miðað er við landsvísu. Þjónusta í bænum er einnig frábær en í hjarta bæjarins er verslunarkjarninn Garðatorg en þar eru alskyns verslanir og þjónustufyrirtæki, tveir bankar, einn sparisjóður, heilsugæsla og svo loks skrifstofur bæjarins. Ekki er þjónustan við fjölskyldufólk af verri kantinum því að í bænum eru starfræktir tíu leikskólar, sex grunnskólar og einn fjölbrautarskóli. Bærinn rekur fimm leikskóla en hinir fimm eru í einkaeign, hvað grunnskólana varðar þá eru fjórir þeirra reknir af bænum en tveir þeirra eru í einkaeign. Tveir grunnskólanna eru þó í sama húsnæði en það eru Alþjóðaskólinn og Sjálandsskóli. Þrír grunnskólanna reka tómstundaheimili þar sem nemendum gefst kostur á að taka þátt ýmis konar leik og starfi. Í bænum er síðan fyrsta flokks tónlistarskóli. Vert er að nefna að foreldrar velja sjálfir skóla fyrir barn sitt ólíkt því sem þekkist í mörgum sveitarfélögum. Þó svo að þjónusta bæjarins sé til fyrirmyndar þá má alltaf gera betur og vonandi mun bæjarstjórnin halda áfram góðu starfi.
Garðabær er sjötti stærsti bær landsins og fer stækkandi með ári hverju en núþegar eru íbúar bæjarins orðnir tæplega tíu þúsund. Enginn vafi er á því að gott orðspor bæjarins hefur haft mikil áhrif á íbúafjölgunina. Sjálfur er ég ekki í nokkrum vafa um það að á næstu árum muni bærinn komast í hóp fimm stærstu sveitarfélaga landsins. Merkilegt nokk þá er Sjálfstæðisflokkurinn við stjórn í fjórum af fimm stærstu sveitarfélögum landsins eða semsagt Reykjavík, Kópavogi, Akureyri og Reykjanesbæ.
Sökum þess hversu vel Sjálfstæðisflokknum hefur gengið í bæði sveitarstjórnar- og landsmálum þá hvet ég fólk til þess að merkja X við D-listann í komandi alþingiskosningum og tryggja þannig að framtíð landsins sé í öruggum höndum.
Höfundur situr í miðstjórn Hugins og er nemi við Verzlunarskóla Íslands.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.