Lóðaúthlutanir
Nýverið úthlutaði Garðabær lóðum í Garðahrauni og Hraunsholti. Ekki voru allir sammála um það hvort að á réttan og sangjarnan hátt hafi verið staðið að úthlutun þeirra lóða sem í boði voru. Þessu tengdu langar mig til þess að viðra mína hugmynd um það með hvaða hætti mér þætti eðlilegast að staðið yrði að lóðaúthlutunum.
Í gegnum tíðina hafa ýmsar aðferðir verið notaðar við úthlutun lóða. Beitt hefur verið hlutkesti, tekið hefur verið tillit til búsetutíma í Garðabæ og hliðsjón hefur verið höfð af tekjum og eignum umsækjenda svo nokkuð sé nefnt og hefur sitt sýnst hverjum um flestar þessar viðmiðanir. Það er því vandfundin hin eina rétta leið við úthlutun lóða, sérstaklega í bæ eins og Garðabæ, þar sem fjölmargir vilja búa.
Á heimasíðu Garðabæjar má finna reglur, sem nú gilda um úthlutanir á byggingarrétti. Ég er í flestu sammála því sem þar stendur en oft má gott bæta og að mínu mati er enn ekki alveg nógu ljóst hvaða forsendur liggja til grundvallar úthlutun lóðanna. Í reglunum er annars vegar gert ráð fyrir því að lóðum sé úthlutað með tilliti til almennra skilmála og hins vegar með tilliti til sérstakra skilmála. Almennu skilmálarnir eru að mínu mati mjög ásættanlegir en ég vil meina að sérstöku skilmálarnir þurfi að vera skýrari. Fyrst varðandi það hvort einn stafliður í forgangsröðun gangi fyrir öðrum eða hvort stafliðirnir eru vegnir saman og þá með hvaða vægi. Í öðru lagi varðandi það að ekki er nægjanlega skýrt í hvaða atriðum bæjarstjórn sé heimilt að víkja frá forgangsröðun.
Að mínu mati er réttast að leggja núverandi reglur til grundvallar í öllum meginatriðum, en eftirfarandi breytingar verði settir inn:
Stafliður A hljóði þannig: Umsækjandi hefur átt lögheimili í Garðabæ a.m.k. þrjú ár á síðustu 10 árum fyrir auglýsingu lóðaúthlutunar og hefur sótt um lóð áður en ekki fengið. Búsetuvottorð þjóðskrár skal fylgja umsókn.
Núverandi stafliður A verði stafliður B; stafliður B verði stafliður C; stafliður C verði stafliður D og stafliður D verði stafliður E.
Verði lóðum óráðstafað eftir að umsækjendur í staflið A hafa fengið úthlutun verði næst úthlutað til umsækjenda í næsta staflið og þannig koll af kolli.
Í 2. mgr. 3. kafla um forgangsröðun umsókna, þar sem kveðið er á um heimild bæjarstjórnar til að víkja frá forgangsröðun, þá verði tekið sérstaklega fram í hvaða tilvikum það eigi við og hvað þau frávik eigi við um margar lóðir.
Gildandi reglur með þessum breytingum eru að mínu mati býsna góðar og vonandi ættu allir að geta sammælst um það að þær geti talist sanngjarnar og lýðræðislegar.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.