Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Er tími Framsóknar liðinn?

Haukur Þór Hauksson, 6. júní 2006

Óþarfi er að tíunda þær breytingar og átök sem nú eru í gangi í forystusveit Framsóknarflokksins. Úrslit í nýafstöðnum sveitarstjórnakosningum hafa án efa haft sitt að segja um þær. Það er hinsvegar spurning hvort fylgishrun Framsóknarflokksins og breytingarnar sem við blasa eigi að koma okkur á óvart? Ég held ekki.

Erfitt er að festa hönd á það fyrir hvað Framsókn - þessi gamli bændaflokkur stendur og því er kannski ekki að furða að fólk setji x við eitthvað annað en bé þegar velja þarf á milli ólíkra framboða. Það virðist gjarnan sem tilvist flokksins gangi út á það fyrst og fremst að ná oddaaðstöðu í stjórnarviðræðum og þar af leiðandi völdum. Þá skipta stefnur eða málefni ekki öllu máli.

Það hefur kvarnast hægt og bítandi úr harðkjarna Framsóknar. Samvinnufélags- og kaupfélagsformin henta ekki nútíma viðskiptaháttum og bændum í dag fer stöðugt fækkandi samfara örum tækniframförum. Kannski liggja ástæður fylgishrunsins einnig í því að kjósendur telja flokkinn hafa haft allt of mikil völd í alltof mörg ár, miðað við hversu lítið umboð hann hefur haft frá þeim. Kannski fækkaði þeim hreinlega sem ekki voru tilbúnir að koma flokknum enn einu sinni "til bjargar" í síðustu kosningum. Er enda eðlilegt að svo lítill flokkur sem Framsókn skuli vera með 5 ráðherra af 12? Auðvitað ekki.

Verði Framsókn fyrir fylgishruni í komandi alþingiskosningum má búast við að það auki enn frekar á tilvistarkreppu flokksins og hann heyri fortíðinni til eftir nokkur ár. Yrði það svo slæmt? Nei.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.