Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Vinstri græn á villgötum

Ari Guðjónsson, 13. mars 2007

Í stefnuskrá Vinstri grænna segir:

„Vinstrihreyfingin – grænt framboð vill að kynferðislegt sjálfstæði kvenna verði viðurkennt og telur að konur eigi skýlausan rétt til að ráða yfir eigin líkama“

Þessi stefna er mjög athyglisverð í ljósi ályktunarinnar, Stöðvum klámið- frelsum ástina, sem samþykkt var á flokksþingi Vg fyrir stuttu. Það hlýtur því að vera tvískinnungur að álykta gegn því að konur noti eignarétt sinn yfir eigin líkama í því skyni að búa til klámefni einungis vegna þess að slík meðhöndlun á eignaréttinum stangast á við siðfersgildi Vg manna. Augljóslega stangast hún ekki á við siðferðisgildi eiganda líkamans, þ.e. þess sem á rétt á að ráða yfir honum, enda hefði hann þá sleppt því að taka þátt í gerð klámefnis. Og á einhver annar en hann að fá að ráða?

Skv. Vg þá á einhver allt annar en einstaklingurinn sjálfur að ráða yfir eigin líkama enda vilja menn þar á bæ banna allt klám. Hátt sett fólk úr flokknum hefur jafnvel gengið svo langt að fara fram á að það verði búin til sía sem síar burt allar klámsíður á netinu. Það er absúrd.

 Um daginn ætlaði fólk, sem hefur ákveðið að bera eigin líkama fyrir framan myndavélar í skiptum fyrir pening, að koma til Íslands. Með í för var annað fólk sem hjálpar fyrrnefndu fólki að verða að ósk sinni með því að framleiða efnið þeirra. Tilgangur ferðarinnar var að ræða málin og skemmta sér. Nú segja Vg að konur eigi skýlausan rétt til að ráða yfir eigin líkama en samt voru þau harðlega á móti því að þetta fólk kæmi til Íslands að ræða málin og skemmta sér. Þetta minnir svoldið á könnun sem var gerð um fordóma í garð samkynhneigðra fyrir nokkrum árum. Skv. þeirri könnun hafði yfirgnæfandi meirihluti ekkert á móti samkynhneigðu fólki en hins vegar vildi nánast enginn eiga samkynhneigða nágranna. Þetta eru fordómar í sinni skýrustu mynd.

Stefnuskrá Vg liða þarf greinilega á rækilegri uppfæringu að halda. Það kom alveg skýrt fram á flokksþingi þeirra að þarna er á ferð sósíalískur forsjárhyggjuflokkur sem virðir frelsi einstaklingsins að vettugi. Ég hef enga trú að slíkur flokkur muni fá 25% atkvæða í alþingiskosningunum í vor. Íslenska þjóðin hlýtur að hafa vit á að koma í veg fyrir það.   

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.