Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Aldrei skólagjöld

Ólafur Örn Nielsen, 8. mars 2007

Ólafur Örn Nielsen

Var yfirskrift greinar Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, sem hann ritaði í Morgunblaðið 17. maí árið 2000. Í greininni segir Björgvin:

Með upptöku skólagjalda við Háskóla Íslands væri fallið afar mikilvægt vígi til að jafna rétt þegnanna og vinna gegn stéttskiptingu. Það eru ekki gamlar röksemdir liðinna tíma að allir eigi að hafa jafnan rétt til að njóta menntunar, enda liggja tækifæri einstaklinganna í framtíðinni fyrst og fremst í góðri menntun.

Sjö árum síðar þegar hver einkarekni háskólinn á fætur öðrum hefur skotið upp rótum með góðum árangri er sýn þingmannsins önnur. Ekki alls fyrir löngu lét þingmaðurinn sem skrifaði ,,Aldrei skólagjöld" nefnilega þau orð falla að til greina kæmi að taka upp skólagjöld við Háskóla Íslands. Ef Háskóli Íslands ætti að skipa sér í sæti meðal fremstu háskóla heimsins væri það nauðsynlegt.

Björgvin hitti naglan á höfuðið, yngri flokkssystkinum sínum til mikillar gremju. Fyrir ummæli þessi hlaut hann mikla gagnrýni frá ungum jafnaðarmönnum sem skoruðu ,,á Björgvin, sem og aðra skólagjaldaþenkjandi jafnaðarmenn, til að endurskoða afstöðu sína". Oft er talað um að ungliðahreyfingar stjórnmálaflokka séu aðhald flokks síns en slæmt er það ef þær halda beinlínis aftur af góðum framsæknum hugmyndum.

Það er alltaf gaman þegar stjórnmálamenn sjá ljósið og eru reiðubúnir að skipta um skoðun, til þess þarf býsna mikinn kjark. Það er oft sagt að það beri merki um að stjórnmálamaðurinn hafi þroskast. Á andskólagjaldaþenkjandi fólk ef til vill eftir að þroskast?

Höfundur er varaformaður Hugins.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.