Stóri bróđir fylgist međ ţér

Eins og flestum ćtti ađ vera orđiđ ljóst vill Steingrímur J. Sigfússon, formađur Vinstri grćnna, setja á fót netlöggu til ţess ađ hćgt sé ađ fylgjast međ ferđum manna á netinu. Međ ţví vill hann hindra ađgang fólks ađ óćskilegu efni á internetinu ađ hans mati. Gera má ţá ráđ fyrir ađ Steingrímur hafi hugsađ sér deild innan lögreglunar sem fćri yfir alla tölvupósta, heimasíđur og MSN samtöl sem tölvunotendur hérlendis senda og skođa.
Gćti ţetta orđiđ svipađ og í Kína ađ ţegar ákveđin orđ eru slegin inn á leitarvélum eđa ákveđin orđ send í tölvupóstum verđi slökkt á internetinu hjá viđkomandi og lögreglan komi og fćri mann í hlekkjum niđur á Hverfisgötu. Segja má ađ Steingrímur sé ađ leggja til eftirlit í anda ţeirrar hugmyndar sem skrifuđ hefur veriđ skáldsaga um, ţar sem ríkiđ eđa ,,stóri bróđir” fylgist međ fólkinu.
Ólíkt Steingrími, flestum eflaust til mikillar furđu, er ég ţeirrar skođunar ađ hver og einn hafi rétt til einkalífs. Í dag fara samskipti manna í síauknu mćli fram í gegnum internetiđ og mćtti líkja ţessari hugmynd Steingríms viđ ađ venjuleg samtöl fólks í heimahúsum vćru skrásett af lögreglunni. Eini munurinn er sá ađ auđveldara er, ađ svo stöddu, ađ skrásetja fjarskipti en önnur samskipti.
Međ tilkomu netlögreglu vćri um ađ rćđa harkalegt brot á friđhelgi einkalífsins. Ţađ er ţví mikilvćgt ađ frelsisskerđing á borđ viđ ţá sem Steingrímur bođar nái ekki grundvelli hérlendis. Hlutverk stjórnvalda á ađ vera ţađ ađ standa vörđ um friđhelgi einkalífsins en vitaskuld ekki ađ standa fyrir ritstjórnarstefnu fyrir ţjóđina.
Steinar Ţór Ólafsson
Höfundur situr í stjórn Frjálshyggjufélagsins og er nemi viđ Verzlunarskóla Íslands.
Grein birtist áđur 2. mars á frelsi.is.
Hćgri.is
Fréttabréf
Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.