Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Ríkisreknir stjórnmálaflokkar

Haukur Þór Hauksson, 5. mars 2007

Undanfarin ár hafa framlög ríkisins til stjórnmálaflokka stóraukist. Lögin eru núna þannig að nái stjórnmálaflokkur 2,5% kosningu þá kemst hann fyrst á ríkisspenann og eftir því sem fylgi stjórmálaflokks eykst, því hærra verður framlag ríkisins! Af hverju í ósköpunum telja þingmenn það eðlilegt að senda skattborgurum reikninginn fyrir rekstri stjórnmálaflokka?

Á sama tíma og opinberu fé er mokað í flokkana er verið að banna einstaklingum og fyrirtækjum að styrkja þá um meira en sem nemur ákveðinni fjárhæð. Það fer því að verða harla erfitt fyrir nýja eða litla flokka að koma sér á framfæri. Nú er einnig nokkuð hávær umræða á meðal þingmanna að setja takmarkanir við auglýsingum stjórnmálaflokka.  Hvernig í ósköpunum eiga ný framboð að geta komið sér á framfæri svo með góðu móti sé.

Ríkisreknir stjórnmálaflokkar og bann við frjálsum styrktarframlögum einkaaðila grafa undan lýðræðinu, á því leikur enginn vafi. Þá mun þessi þróun án efa draga úr sjálfboðastarfi innan flokkanna.

Hverjir skyldu svo ákveða framlögin til stjórnmálaflokkanna nema auðvitað þingmenn sjálfir! Þótt það geti verið gott að sitja beggja megin borðs og skammta sér sjálfur þá þurfa þingmenn og starfsmenn stjórnmálaflokka að fara að staldra við og hugsa málið. Það kann aldrei góðru lukku að stýra að grafa undan lýðræðinu með boðum, bönnum og ríkisvæðingu.
 
Er kannski kominn tími til að Samkeppnisstofnun athugi samráð stjórnmálaflokka?

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.