Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Femínískar jafnaðarkonur á villigötum

Sigríður Dís Guðjónsdóttir, 23. febrúar 2007

Sigríður Dís Guðjónsdóttir

Femínískar jafnaðarkonur er hávær hópur kvenna í “jafnréttisbaráttu”. Aðferðir þeirra eru því miður niðurlægjandi fyrir konur sem og karla. Þær gagnrýna stöðu kvenna í þjóðfélaginu en gera sér ekki grein fyrir því að málflutningur þeirra er hindrun á vegi þeirra kvenna sem raunverulega vilja jafnan rétt kynjanna.

Femínískar jafnaðarkonur aðgreina einstaklinga í tvo hópa. Í öðrum hópnum eru konur og í hinum hópnum eru karlar. Í þeirra heimi virðist vera stórt bil á milli hópanna. Karlmenn sæta stöðugri gagnrýni frá þeim og óvirðing þeirra í garð karlmanna er bæði kjánaleg og óafsakanleg. Ef þær vilja að karlmenn beri virðingu fyrir þeim þá verða þær að sýna þeim gagnkvæma virðingu.

Jafnrétti er fyrst og fremst hugarfarsbreyting. Þess vegna ættu femínískar jafnaðarkonur að hefja málefnalega jafnréttisbaráttu sína á því að losa sig við þá minnimáttarkennd sem einkennir málflutning þeirra. Konur verða hafa trú á sjálfum sér svo aðrir geti einnig haft trú á þeim. Eins og staðan er í dag þá viðurkenna femínískar jafnaðarkonur fyrir sjálfum sér að það sé veikleiki að vera kona með því að halda því fram að samfélagið eigi að koma öðruvísi fram við þær en karla.

Það er óréttlátt að gefa konum ekki tækifæri til að sanna sig sem einstaklingar og það á ekki að einfalda þeim leiðina upp metorðastigann með kynjakvótum og öðru slíku. Kynjakvótar stuðla að ójafnrétti og brjóta jafnt á konum sem og körlum. Einstaklingar skulu fyrst og fremst vera metnir eftir hæfni en ekki eftir kyni. Því er ekki rétt að setja kynjasjónarmið inn í stjórnarskrá því það mun ekki veita jöfn tækifæri beggja kynja. Það er kominn tími til að femínískar jafnaðarkonur geri sér grein fyrir því að jafnrétti verður aldrei náð fram með ójafnrétti.

Ég vil að mér sé gefið tækifæri til að sýna hvað í mér býr sem einstaklingur í þessu þjóðfélagi. Því vil ég ekki að femínískar jafnaðarkonur eyðileggi það fyrir mér með því að planta mér í sandkassann með þeim til að gefa karlamenningunni langt nef.
Ég veit að þannig mun ég ekki ná árangri.

Höfundur er ritari Hugins.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.