Er frjálshyggjan sálarlaus?

Frjálshyggjan er rökhyggja að mínu mati. Frelsið skilar meiri verðmætasköpun, hamingju og réttlæti og þess vegna er frjálshyggjan rökrétt þegar kemur að stjórnmálum. Bestu stjórnmálamennirnir geta þess vegna verið þeir sem gera hvað minnst. Hugmyndafræði frjálshyggjunnar byggir á því að treysta eigi einstaklingnum fyrir eigin velferð og lífi meðan önnur hugmyndafræði eins og sósíalisminn er hugmyndafræði forsjárhyggju og samneyslu. Sósíalisminn gengur ekki upp vegna þess að hann gerir ráð fyrir því að stjórnmálamenn viti betur en borgaranir sjálfir hvað sé þeim fyrir bestu. Samtryggingarsjóðir og háir skattar fyrir samneyslu draga úr möguleikum einstaklingsins til að ráðstafa sínu fé eins og hann sjálfur kýs.
Það sem er erfiðast fyrir þá sem aðhyllast frjálshyggjuna að svara er spurningin hvað með þá sem ekki geta séð fyrir sér sjálfir? Hvað með gamla fólkið sem lifir við fátæktarmörk, öryrkja og aðra sem minna mega sín, hvað á þetta fólk að gera? Til að svara þessu þurfum við að líta aðeins á okkur sjálf. Ég vil meina að flest fólk sé í eðli sínu gott fólk. Ég myndi ekki vilja sjá gamalt fólk, öryrkja eða annað fólk sem farið hefur halloka í lífinu svelta eða lifa í vosbúð. Með lægri skattheimtu verður ráðstöfunarmáttur launa meiri og því meira af peningum til að setja í góð málefni. Fram kæmi krafa frá almenningi um að fyrirtæki sýndu samfélagslega ábyrgð og leggðu góðum málefnum lið, en skyldan væri horfin.
Nú hugsa margir að kjör öryrkja myndu versna til muna við það að ríkið sæi þeim ekki fyrir öllum sköpuðum hlutum. En það er hreint andstæðan. Í dag lifa öryrkjar engu sældarlífi og ekki hægt að segja að það séu öfundsverð hlutskipti að komast í þann hóp, en samt er endalaust verið að taka peninga í samneysluna af vinnandi almenningi. Dýr sendiráð, menningarsetur, RÚV og svona mætti lengi telja bera vott um vanhæfi hins opinbera til að dreifa réttlátt því fé sem tekið er af fólki í samneyslu. Ef einkaaðilar sæju um sendiráðin væri t.d. bara eitt sendiráð á Norðurlöndunum, en ekki mörg rándýr elliheimili fyrir pólitíkusa sem þarf að finna samastað að loknum stjórnmálaferli?
Ég vil öldruðum og öryrkjum vel, þess vegna vil ég að ríkið láti þá afskiptalausa!
Höfundur er formaður ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.