Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Hvað vilt þú?

Ólafur Örn Nielsen, 11. febrúar 2007

Hvað vilt þú?

Þegar þú gengur til kosninga er mikilvægt að þú spyrjir þig hvað vilt þú? Á stefnuskrám flokkana má finna loforð um hitt og þetta sem flokkarnir vilja gera fyrir hina og þessa hópa en í mínum huga eru þau stefnumál sem miða að því að þú fáir að stjórna lífi þínu enn meira þau dýrmætustu.

Ég vil stjórna því hvort ég borgi áskrift af ákveðinni sjónvarpsstöð.

Ég vil stjórna því í hvað launin mín fara.

Ég vil greiða skólagjöld því ég veit að það gerir nám mitt að betri fjárfestingu.

Ég vil getað keypt bjórinn minn þar sem ég vil en ekki hjá ríkinu einvörðungu.

Ég vil geta tannburstað mig án þess að þurfa að greiða ríkisstofnun hluta af launum mínum fyrir að segja mér hvernig ég eigi að gera það.

Ég vil velja hvað ég borða. Ég vil til dæmis ekki að ríkið velji fyrir mig hvort ég borði íslenskt eða erlent kjöt.

Ég vil ekki borga fyrir jarðgöng sem ég mun aldrei nota.

Þetta er það sem ég vil. Hvað vilt þú? Sjálfstæðisflokkurinn er sá flokkur sem vill ekki stjórna þér.

Hafðu þessa spurningu hugfasta þegar þú gengur til kosninga í vor.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.