Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Listamannalaun

Ari Guðjónsson, 6. febrúar 2007

Ari GuðjónssonFyrir sléttum mánuði átti sér stað sá voveiflegi atburður að  þrír einstaklingar bættust við  30 manna hóp þeirra sem þiggja listamannalaun frá íslenska ríkinu. Nýliðarnir þrír eru þau Guðmunda Elíasdóttir söngkennari, Guðmundur Jónsson söngvari og Magnús Pálsson myndlistarmaður og mun ríkið borga þeim listamannalaun til æviloka. Samkvæmt forseta Alþingis, Sólveigu Péursdóttur, vill þingið „sýna sínum bestu listamönnum sóma“ með því að borga þeim þennan pening sem tekinn er af skattgreiðendum landsins að þeim óforspurðum.
    Þessi rök forseta Alþingis eru vissulega óboðlega íslenskum skattgreiðendum enda væri alveg eins hægt að fá þriggja manna nefnd til að útvelja nokkra framúrskarandi aðila úr einhverri annarri starfsgrein og borga þeim laun frá ríkinu til æviloka. Það er vissulega ekki gert enda þarf fólk sem skarar fram úr í sinni vinnu sjaldan á aukapening að halda og slíkt mundi einnig auka líkurnar á því að þeir aðilar hættu hreinlega að vinna og nytu þess frekar að vera á eilífðar ríkisjötuvist. Það er því ekki nema von að fólk spyrji sig hvort bestu listamenn þurfi á þessum listamannalaunum að halda. Menn eins og Arnaldur Indriðason og Ólafur Jóhann Ólafsson eru vanir að selja mörgþúsund eintök af bókum sínum og því ættu þeir að una sáttir við sitt en það virðast Guðmunda Elíasdóttir, Guðmundur Jónsson og Magnús Pálsson ekki gera. Er þessi þrenning þá á meðal bestu listamanna íslensku þjóðarinnar. Ég veit það ekki.
    Auðvitað á ríkið ekki að gera upp á milli starfsgreina í landinu og þykir undirrituðum hin mesta furða að listamenn af öllum skuli vera ofan á í þessum efnum. Þeir sem starfa í listabransanum eru þekktir fyrir kolsvört viðskipti og því er það mjög undarlegt að ríkið skuli verðlauna þá fyrir það. Það er einnig mjög ósanngjarnt að listamenn skuli fá svona mikla forgjöf í vinnu sinni í staðinn fyrir að leyfa almenningi að velja úr hvaða list á rétt á sér og hver ekki. Á einhver list rétt á sér sem bara örfáum hræðum líkar við? Svarið við þeirri spurningu er nei og því vona ég að þeir flokkar sem munu mynda næstu ríkisstjórn setjist niður eftir kosningar og ákveða að taka algjöra u-beygju hvað varðar stefnu stjórnvalda í þessum efnum.
    Listin hefur alltaf og mun alltaf verða til og sú stefna að dæla peningum skattgreiðenda linnulaust í þann bransa gerir ekkert gott heldur illt verra. Það þarf enginn góður rithöfundur eða myndlistamaður eða tónlistamaður að láta ríkið múta sér til að vinna sitt starf vel. Leyfum listinni að vera sjálfbærri í eitt skipti fyrir öll.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.