Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Gegn einelti í Garðabæ

Erlingur Þór Tryggvason, 22. janúar 2007

Nú stendur yfir í grunnskólum Garðabæjar herferð gegn einelti undir yfirskriftinni ,,Gegn einelti í Garðabæ". Verkefnið er gott og þarft, enda einelti eitthvað sem þarf að útrýma úr íslensku skólunum.

Í tengslum við þetta verkefni fór ég að velta fyrir mér hvaða form eru til á einelti og hvort fyrirtæki, stofnanir eða jafnvel ríkið geti verið þolendur og gerendur í eineltismálum? Öll höfum við heyrt Baugsmenn tala um einelti gegn þeim af hálfu hins opinbera. Ekki ætla ég nú að fjalla um það og þaðan af síður taka afstöðu til þess hvort þeir Baugsmenn séu lagðir í einelti, heldur fjalla frekar um einelti hins opinbera gegn ákveðnum þjóðfélagshópum.

En hver er skilgreiningin á einelti? Orðabókin talar m.a. um að einelti sé þegar einhverjum er ekki gefinn friður. Þá komum við aftur að hinu opinbera; er einhver hópur sem fær ekki frið fyrir hinu opinbera? Launafólk þarf alla sína vinnandi ævi að greiða stóranhluta af sínum tekjum til ríkisins. Hátekjufólk greiðir háa skatta og greiðir þeim mun meira til samfélagsins en fær sömu þjónustu. Eignarskattar eins og fasteignaskattar gefa engum grið og svona mætti lengi telja.

Oftar en ekki er talað um sanngirni þegar rætt er um þessi mál, t.d. að það sé sanngjarnt að efnaður maður greiði meira í skatta en láglaunaeinstaklingur. En hvers vegna? Þeir nýta sömu þjónustu, fara í sömu biðröð á spítalanum og keyra á sömu vegunum. Hugsum okkur ef slíkt innheimtuform ætti sér stað hjá fyrirtækjunum, Ipod kostaði 5.500 kr. fyrir mig, en 5,5 milljarða fyrir Hannes Smárason. Sanngjarnt?

Það sem kemur helst í veg fyrir málefnalega umræðu um skattkerfið er öfund. Öfundin er sterk og ristir djúpt; ég öfunda Jón Ásgeir og vil því að hann greiði meira, eingöngu vegna þess að hann á meira! Eðlilegasta skattheimtan væri að innheimt væru þjónustugjöld fyrir þá þjónustu sem við nýttum og frjáls félagasamtök myndu styðja við þá sem á því þyrftu að halda. Því miður fyrir mig er slíkt ekki raunhæft eins og þjóðfélagið er í dag og er því málamiðlun á sanngirnina að taka upp lága, flata skattprósentu.

Ríkið og sveitarfélögin eiga að hætta að leggja vinnandi fólk og aðra þjóðfélagshópa í einelti með skattheimtu. Skattkerfið á ekki að nota til tekjujöfnunar, heldur eingöngu til tekjuöflunar. Ríkið ætti að draga sig úr þeim verkefnum sem einkaaðilar geta séð um (RÚV, Landsvirkjun, ÁTVR o.s.frv.) og einbeita sér að þeim verkefnum sem falla undir þeirra verksvið og láta okkur almenning landsins í friði!

Stöðvum einelti hins opinbera, kjósum til hægri.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.