Gott hjá garđbćingum

Það leikur enginn vafi á því að Garðabæ hefur verið vel stjórnað síðustu fjögur ár. Nú hafa verk sjálfstæðismanna verið sett í dóm kjósenda sem greinilega vilja áframhaldandi forystu. Við sem ungir garðbæingar höfum fjóra sterka málsvara í lista flokksins þar sem einn mun starfa sem bæjarfulltrúi og einn sem varabæjarfulltrúi. Þetta hlýtur að teljast mikið fagnaðarefni.
Það er þó nokkuð um málefni ungra garðbæinga á stefnuskrá flokksins og því mikilvægt að við fáum úr þeim unnið. Þau málefni sem eru efst á baugi hjá ungum eru meðal annars krafa okkar um að geta keypt húsnæði á sanngjörnu markaðsverði og að fá úthlutaðar lóðir á sanngjörnu matsverði. Fjölgun battavalla sem ekki eru stundaðar æfingar á. Að koma upp fullnægjandi æfingaraðstöðu fyrir fimleikafólk og að bæta sundlaug bæjarins.
Ég er ekki í nokkrum vafa um að úr þessum málefnum verði unnið og að ánægja meðal ungs fólks í Garðabæ verði meiri eftir fjögur ár heldur en hún er í dag. Þess vegna hvet ég áhugasama til þess að leita upplýsinga um starf Hugins því nóg er af verkefnum fyrir næstu fjögur ár.
Hćgri.is
Fréttabréf
Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.