Ég

Stjórnmálamenn hafa svo oft sagt þér hver ég er. Þeir fjalla um mig daglega og í sífellu hafa þeir áhyggjur af mér. Þegar ég var barn sögðu þeir mér hvað ég mátti vera lengi úti að leika, hvað ég ætti að læra og í hvaða skóla ég ætti að læra. Þeir bönnuðu mér að borða m&m og ég mátti ekki horfa á sjónvarp á fimmtudögum. Þegar ég varð eldri leifðu þeir mér að drekka áfengi en ég mátti ekki og má ekki kaupa það hvar sem er né af hverjum sem er. Þeir sögðu mér nýlega að ég mætti ekki leifa vinum mínum að reykja í fyrirtækinu mínu. Hvað næst, á að banna þeim að drekka þar og síðan banna fólki að tala innan veggja eignar minnar líka, allt í nafni lýðheilsu? Ég á að styrkja ákveðna sjónvarp- og útvarpsstöð þó ég hvorki horfi né hlusti á hana og þótt ég hafi aðgang að miklu betra sjónvarpsefni á öðrum stöðvum. Þeir segja mér að ég sé glæpamaður þegar ég kaupi tóma geisladiska og sekta mig fyrir það. Þeir eru alltaf að segja mér hvað ég má og má ekki, hvað ég á og á ekki að gera en þeir vita ekki hver ég er. Þess vegna ætla ég að segja þér frá sjálfum mér og leyfa þér að dæma mig af mínum eigin orðum.
Ég vil fá frið fyrir afskiptum annara og sérstaklega ríkisins á mínum málum. Ég vil hafa rétt til að velja og ganga þann veg sem ég tel vera mínum hagsmunum fyrir bestu. Ég vil fá tækifæri til að finna lífshamingjuna á eigin forsendum og fyrir það er ég kallaður öfgamaður, öfga-frjálshyggjumaður, en ég hef enga öfga predikað. Ég vil engum manni mein gera né nokkrum manni óskað ills. Ég vil frið í heiminum og frelsi fyrir alla til að njóta hans. Ég get ekki lofað því að okkur komi öllum vel saman en virðum frelsi hvors annars og við þurfum þess ekki.
Mínar skoðanir um hamingju, vellíðan eða gott líf eiga ekki að vera baggi á þínu baki svo ekki láta mig bera þínar. Ég veit nefnilega manna best hverjar mínar væntingar og langanir eru og þó ég viti ekki endilega hvar takmörk mín liggja mum ég aldrei komast að því ef aðrir taka ákvarðanir fyrir mig eða eins og Josiah C. Wedgwood orðaði það: ,,Man must have the right of choice, even to choose wrong, if he shall ever learn to choose right."
Ég vil sjá og ferðast um heiminn, kynnast nýju fólki og nýrri menningu, ég vil geta tjáð skoðanir mínar og tilfiningar og jafvel verslað við annað fólk, frjáls. Ég vil gera svo margt og sjá sem flest en hef ekki eilífðina til þess. Ég vona bara að ég hafi frelsi frá kúgun, þvingunum og ofbeldi þannig að ég geti farið mínar eigin leiðir í lífinu. Mig grunar að margur hégóminn segi mér nú að svo margt komi upp á í lifinu og við byrjum ekki öll á sama stað, þess vegna þurfum við að jafna og hjálpa hvort öðru.
Ég veit að lífið getur verið ósanngjarnt og það getur verið erfitt og stundum hrösum við en ég þekki ekki mann sem myndi ekki staldra við og rétta þér hjálparhönd. Kannski er það barnaskapur í mér en ég vil trúa því að við séum öll gott fólk inn við beinið. Hugsanlega erum við eigingjörn og gerum ekkert en hvaða rétt hefur þú til að neyða mig til að hjálpa þér? Ég skal vera fyrstur til að rétta þér hjálparhönd ef þú hrasar en ég verð að fá að gera það á mínum forsendum ekki þínum.
Það er svo margt sem mig langar í en á ekki, það er svo margt sem mig langar að gera en get ekki en ég er engu bættari þó ég neiti öðrum um það sem ég ekki á og ekki get. Ég er trúr minni sannfæringu og ég veiti ekki afslátt af henni, hvorki þegar kemur að ríkismiðlum(rúv), reykingafrumvörpum eða fjölmiðlalögum. Ég vona að þú sért trúr þinni.
Kæri lesandi ef þú getur lesið og skilið þennan texta eru góðar líkur á því að þú búir við meira frelsi en flestir aðarir í heiminum, nýttu það því lífið er of stutt til að láta aðra segja okkur hvernig við eigum að lifa því. Láttu því líf þitt verða það sem þú vilt að það verði og enginn, hvorki ég né nokkur annar, getur dæmt þig. Líttu í kringum þig, ertu virkilega svo ósjálfbjarga að þú þarft mig til að taka ákvarðanir fyrir þig?
Vilhjálmur Andri Kjartansson
Grein birtist áður á www.frelsi.is
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.