Segjum nei við forræðishyggju
Á seinustu árum hafa orðið alveg hreint út sagt ótrúlegar framfarir á íslensku atvinnulífi, ríkisfyrirtæki á borð við gömlu ríkisbankana og Landssímann hafa verið einkavædd og síðan blómstrað við það. Bankarnir eru í dag búnir að taka við af útgerðarfélögunum sem stærsta tekjulind þjóðarinnar og milljónamæringum landsins fer ört fjölgandi. Þetta er mjög jákvæð þróun vegna þess að frjáls markaður skapar frjálsara samfélag, en samt sem áður er enn hægt að finna hér á landi alveg hræðileg dæmi um forræðishyggju.
Í fyrsta lagi ber að nefna alversta dæmið en það hljómar þannig að samkvæmt lögum hefur ríkið einkarétt á smásölu áfengis, en það er ekki nóg því það er einnig ólöglegt að auglýsa áfengi og svo er líka ólöglegt fyrir sjálfráða einstaklinga að kaupa áfengi nema þeir séu orðnir 20 ára eða eldri. Það er alveg óskiljanlegt afhverju ríkið telur sig vera hæfara heldur einstaklingar og einkarekin fyrirtæki til þess að selja áfengi. Svo er það líka mjög loðið að einstaklingur megi gifta sig en samt ekki bjóða upp á kampavín í brúðkaupinu vegna þess að hann er ekki orðinn tvítugur. Hvað auglýsingarnar varðar þá á að vera sjálfsagður hlutur að mega auglýsa vöru sem bæði er löglegt að kaupa og selja.
Í öðru lagi ber að nefna bann við auglýsingum á tóbaki, en það er mjög gott dæmi um forræðishyggju. Það er mjög erfitt að skilja það afhverju ríkið telur einstaklinga hæfa til að selja og kaupa tóbak en samt algjörlega óhæfa til þess að auglýsa tóbak eða bara einfaldlega horfa á það upp í vöruhillu í verslun. Alveg nákvæmlega eins og auglýsingar á áfengi þá á það að vera sjálfsagður hlutur að mega auglýsa vörur sem þú hefur leyfi til að selja.
Í þriðja lagi ber að nefna kynjakvóta en þeir eru slæmt tól forræðishyggjunnar sem vinstri menn vilja koma fyrir nánast alls staðar. Kynjakvótar eiga samkvæmt vinstri mönnum að gera það kleift að jafnrétti náist í stjórnum fyrirtækja, á listum stjórnmálaflokka og jafnvel í setu á Alþingi. Kynjakvótar stuðla ekki að jafnrétti, þeir stuðla að kvenrétti en ólíkt því sem margir virðast halda þá eru þessir tveir hlutir algjörar andstæður. Konur eiga að þurfa að vinna fyrir sínu alveg nákvæmlega eins og karlar, jafnrétti þýðir að það sama gildi fyrir alla, ekkert annað. Þar að auki má nefna að kynjakvótar í stjórnmálum eru ólýðræðislegir þar sem verið er að breyta lýðræðislega kjörnum lista.
Seinast en ekki síst ber að nefna bann við spilavítum og einkarétt Háskóla Íslands og Samtaka Áhugafólks um Áfengis- og vímuefnavandann á því að reka spilakassa. Bann við spilavítum er réttlætt af vinstrimönnum með því að vísa til þess að margur einstaklingurinn hafi sóað aleigunni vegna fíknar sinnar. Það að banna hluti vegna þess að einhverjir einstaklingar eiga við sjúkdóm að stríða sem tengist þeim er alveg út í hött. Það er vel þekkt að fólk hefur orðið háð hlutum eins og tölvuleikjum eða jafvel skák, spilað mörgum klukkutímum saman án þess að taka pásu. En þýðir það þá að banna eigi fólki að spila tölvuleiki eða tefla. Nei ég held ekki. Það á að hjálpa þeim sem eiga bágt en almenningur á að fá að njóta lífsins án óþarflegra afskipta stjórnvalda.
Að að þessu sögðu vil hvetja stjórnvöld til að endurskoða þess forræðishyggju fara frekar leið frelsis í staðinn. Forræðishyggja er slæm og mun alltaf vera það!
Höfundur situr í miðstjórn Hugins og er nemi við Verzlunarskóla Íslands.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.