Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Mannanafnanefnd

Sigurbjörn Ingimundarson og Sigríður Dís Guðjónsdóttir, 17. nóvember 2006

Í frumvarpi til laga um breytingu á lögum um mannanöfn kemur fram að leggja skuli niður störf mannanafnanefndar. Að því gefnu að störf mannanafnanefndar séu kostuð af íslenskum skattborgurum, finnst okkur rétt að íhuga hvort aðhald við nafnveitingar eigi að veita með þessum hætti.

Í dag er það m.a. hlutverk mannanafnanefndar að semja og uppfæra mannanafnaskrá, veita leiðbeiningar um nafngiftir og skera úr álita- og ágreiningsefnum um nöfn. Ef frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannanöfn  verður samþykkt, færist úrskurðarvald mannanafnanefdar til dómsmálaráðherra og mannanafnaskrá verður lögð niður. 

Dæmi eru um það að nöfnum hafi verið hafnað þó svo að þau hafi átt sér langa sögu í íslenskri tungu og  samfélagi, og hafi jafnvel gengið manna á milli innan sömu fjölskyldu  í margar kynslóðir. Þessir úrskurðir sem og margir aðrir, hafa valdið miklum sárindum og deilum og varla verður það talið sanngjarnt að banna megi nöfn sem vitað er að Íslendingar hafi borið um langan tíma. 

Einföldun og hagræðing innan stjórnsýslu ríkisins er nauðsynleg upp að því marki sem telja verður eðlilegt. Valdhafar innan stjórnsýslunnar verða að horfa gagnrýnum augum á þá starfsemi sem þeir hafa umsjón með, í þeim tilgangi að kerfið verði einfaldara og aðgengilegra. Nefndir og ráð sem eru börn síns tíma og almennt talin óþörf nú til dags ber að leggja niður eða veita öðrum þær heimildir til ákvarðanatöku sem þær áður höfðu, en að því miðar fyrirliggjandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannanöfn.  

Með einföldun og hagræðingu er hægt að spara. Sparnaður og aðhald í útgjöldum ríkisins eru skattgreiðendum til góðs og leita skal allra leiða til að koma á auknum sparnaði. Samkvæmt fyrrgreindu frumvarpi má ætla að með niðurlagningu nefndarinnar náist fram sparnaður og aukin skilvirkni. Má líta á það sem lítið en mikilvægt fordæmi fyrir því að ná fram nauðsynlegum sparnaði í sífellt vaxandi bákni ríkisins. 

Verði frumvarpið samþykkt er ekki þar með sagt að einstaklingar geti nefnt barn sitt því nafni sem þeim sýnist, því enn verða í gildi lög um mannanöfn sem fara verður eftir. Ef upp kemur ágreiningur um nafngift skal samkvæmt nýja frumvarpinu vísa honum til dómsmálaráðherra sem tekur endanlega ákvörðun í málinu.

Ef aukinn sparnaður og skilvirkni nást ekki með niðurfellingu nefndarinnar er tilganginum ekki náð og því ætti að halda störfum nefndarinnar óbreyttum.

Höfundar sitja í stjórn Hugins

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.