Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Hvalveiðar leyfðar á ný.

Anna Lilja Hallgrímsdóttir, 15. nóvember 2006

Hvalveiðar hafa verið stundaðar við strendur Íslands öldum saman þó með nokkrum hléum. Elstu heimildir um hvalveiðar eru frá 1651 þegar Hollendingar og Baskar stunduðu sem mestar veiðar hér við land. Alþjóðahvalveiðiráðið tók síðan ákvörðun árið 1986 um að banna skyldi tímabundið veiðar í atvinnuskyni. Ísland gekk úr Alþjóðahvalveiðiráðinu 1992 en gekk svo aftur í það árið 2002 og vorum við skuldbundin því að hefja ekki veiðarnar aftur fyrr en árið 2006.

Þann 17. október sl. tilkynnti síðan Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra að hefja ætti veiðarnar í atvinnuskyni að nýju. Við fengum strax sterk viðbrögð frá umheiminum og gekk Paul Watson forseti umhverfissamtakanna Sea shepard meira segja svo langt að kalla okkur ,,Norður Kóreu hvalveiðiþjóða sem sýni almenningsáliti heimsins fyrirlitningu". Grænfriðungar létu sig ekki vanta og hélt talsmaður þeirra því stíft fram að við hefðum engan markað fyrir hvalkjötið en hinsvegar mjög stóran og vaxandi markað fyrir hvalaskoðunarferðir.

Ef við lítum nánar á málið má sjá að mjög stór markaður er í Japan fyrir hvalkjötið og örugglega mun víðar í Austurlöndum. Japanska ríkisstjórnin var ein af þeim fáu sem fagnaði þessarri ákvörðun okkar. Ferðaþjónustan ætti heldur ekki að vera í mikilli hættu stödd þó nokkrir hvalir hverfi úr sjónum en farið verður mjög varlega í þessar veiðar og eru þetta fá dýr miðað við hvað veiðistofninn er stór.

Samkvæmt rannsóknum Hafrannsóknarstofnunnar er ástand hvalveiðstofna við Ísland almennt gott og talið er að hvalirnir skipti þúsundum. Mikil hætta er fólgin í því að láta hvalastofna stækka hömlulaust en það er talið hafa neikvæð áhrif á fiskistofna og hefur mikil áhrif á möguleika Íslands til fiskveiða. Niðurstaða málsins er sú að sjávarútvegsráðherra hefur skýrt umboð frá alþingi til þess að leyfa veiðarnar og hvalastofninn er okkar náttúruauðlind og við eigum ekki að leyfa öðrum þjóðum að skipta sér af því hvort við veiðum þá eða ekki.

Höfundur situr í miðstjórn Hugins

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.