Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Til hamingju Garðabær

Erlingur Þór Tryggvason, 29. maí 2006

Í nýafstöðnum kosningum launuðu Garðbæingar okkur sjálfstæðismönnum fyrir vel unnin störf. Sigurinn var stærri en bjartsýnustu menn þorðu að vona og umboðið óumdeilt. Það að flokkur sem setið hefur við völd síðan 1966 fái umboð 62,4% kjósanda er vitnisburður þess að hér er vel rekið bæjarfélag og bæjarbúum líður vel í Garðabæ. Enda var málefnaskrá mótherjanna ekki upp á marga fiska. Þeirra helsta stefnumál var að breyta, einungis breytinganna vegna. Þeim er þó vorkunn í því að fráfarandi meirihluti gaf þeim ekki mörg sóknarfæri.

Huginn stendur í blóma og hefur sjaldan eða aldrei verið eins öflugt. Félagið sem telur hundruð félaga, var mjög sýnilegt í kosningabaráttunni og er óhætt að segja að eftir því hafi verið tekið. Huginn er eina virka pólitíska ungliðahreyfingin í Garðabæ, styrkur okkar sást í góðu gengi flokksins. Við ætlum þó síður en svo að slappa af, ungt fólk í Garðabæ hefur sýnt það á undanförnum vikum að það er einkar áhugasamt um málefni bæjarins og vill hafa áhrif. Þátttaka í ungliðastarfi Sjálfstæðisflokksins er góð leið til þess koma skoðunum sínum á framfæri, styrkur okkar felst í því fólki sem í starfinu er á hverjum tíma.

Næstu fjögur ár eru björt í Garðabæ, en menn mega ekki sofna á verðinum. Öflugt grasrótarstarf er fjárfesting til framtíðar árangurs. Það er mikilvægt fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Garðabæ að starfið í Huginn sé öflugt. Frábær árangur í kosningum núna á laugardaginn síðastliðinn er gleðiefni fyrir alla Garðbæinga, því nú er tryggt að Garðabær verði áfram góður bær!

Erlingur Þór Tryggvason formaður

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.