Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Gæfa en ekki bölvun

Skúli Hansen, 14. nóvember 2006

Í stjórnmálaumræðunni seinustu daga hefur eitt málefni staðið öðrum ofar, en það er málefni innflytjenda á Íslandi. Umræða um þessi mál hófst með miklum látum núna fyrir nokkrum dögum síðan þegar að frambjóðendur Frjálslyndaflokksins létu mjög svo barnaleg og rasistaleg ummæli í garð innflytjenda falla í fjölmiðlum.

Þeir sem eru á móti innflytjendum segja m.a. að þeir hirði störf af Íslendingum, að þeir misnoti „kerfið“ og að þeir valdi alskyns öðrum þjóðfélagsvandamálum. Staðreyndin er hinsvegar sú að innflytjendur halda að öllum líkindum uppi stoðum íslensks efnahags. Til að byrja með þá hefur mikil aukning í menntun á seinustu áratugum valdið því að stór hluti Íslendinga hefur ekki áhuga á því að vinna láglauna störf, en það þýðir að offramboð hefur myndast á atvinnumarkaðnum, semsagt fjöldi starfa í boði er meiri en fjöldi þeirra sem vantar starf.

Lausnin við þessu offramboði á störfum kemur síðan með innflytjendunum en þeir nefnilega taka að sér þessi störf sem mynda offramboðið. Atvinnuþáttaka á Íslandi er sú mesta í heimi og atvinnuleysi mælist um 1% sem er merkilega lágt miðað við nágrannalöndin, af þessu mætti draga þá ályktun ef það væri ekki fyrir innflytjendur að þá væru góðar líkur á því að kreppa hefði komið upp hér á landi. Nýlegar rannsóknir hafa einnig sýnt fram á það að næstum allir þeir innflytjendur sem setjast að á Íslandi eru virkir í atvinnulífinu og eru því ekki að misnota hið opinbera.

Forsvarsmenn Frjálslyndaflokksins hafa bent á þau vandamál sem hafa myndast í kringum innflytjendur í löndum eins og Dannmörku, Svíþjóð, Frakklandi og Þýskalandi. Benda þeir á þá staðreynd að í þessum löndum sé mikið atvinnuleysi og vilja þeir halda því fram að þetta atvinnuleysi sé á einhvern hátt innflytjendunum að kenna. Sannleikurinn er hinsvegar sá að atvinnuleysi var þegar nokkuð mikið í þessum löndum áður en innflytjendur hófu að setjast að í þeim og þvi er það alveg fáránlegt að reyna að kenna innflytjendum um þau vandamál sem myndast hafa í þessum ríkjum.

Frjálst flæði vinnuafls er ein af grundvallarhugmyndum hagfræðinnar og skiptir bæði efnahag Íslands svo og annarra ríkja miklu máli. Látum ekki gamaldags hugsun koma í veg fyrir það að landið okkar blómstri. Höfum trú á innflytjendum og þeirri gæfu sem þeir færa okkur.

Höfundur situr í miðstjórn Hugins og er nemi við Verzlunarskóla Íslands.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.