Kristileg sálgæsla í skólum

Viðtal við Reyni Harðarson sem birtist í 1.tbl. Hægri
Þú hefur verið ötull í gagnrýni þinni á svokallaða ,,vinaleið”. Í hverju felst ,,vinaleiðin”og hvað er gagnrýnivert varðandi hana?
Kærar þakkir. Vinaleiðin er “kristileg sálgæsla” veitt af djákna eða presti með skrifstofu í skólum. Stuðningur við nemendur er æskilegur en ætti að vera á hendi hlutlausra aðila, ekki trúfélags. Þegar Vinaleiðin bauðst fór skólastjóri Hofsstaðaskóla fram á að kirkjan kostaði aukið starfshlutfall námsráðgjafa en kirkjan neitaði og krafðist þess að fá vígðan mann inn í skólana. Ástæðan hlýtur að vera að tilgangur þessa starfs er boðun kristinnar trúar, eins og augljóst má vera af starfi djáknans í Mosfellsbæ. Skólinn á að vera fræðslustofnun ekki trúboðsstofnun (sbr. aðalnámsskrá). Í Mosfellsbæ er þessi starfsemi kostuð af skólanum en hér er hún (í fyrstu) í boði fyrirtækis. Kirkjan hefur þó farið fram á árlegar greiðslur úr bæjarsjóði til að kosta laun prests og djákna í skólum. Í ljósi kjarasamninga má t.d. ráða þrjá listmeðferðarfræðinga fyrir hvern prest. Þessi “þjónusta” presta og djákna er því á kostnað ódýrari þjónustu hlutlausra fagaðila.
Er eðlilegt að þjóðkirkja Íslendinga sé í grunnskólum landsins?
Nei. Ekkert trúfélag á að starfa í grunnskólum. Einhver gæti haldið það í ljósi þess að meirihluti landsmanna er skráður (sjálfkrafa) í þjóðkirkjuna. En vera fulltrúa eins trúfélags í skólanum sendir þau skilaboð að það sé rétta eða æskilega trúfélagið. Slíkt er vanvirðing við þá foreldra sem aðhyllast önnur trúarbrögð eða engin og setur börn þeirra í afar erfiða stöðu. Skóli á að vera griðastaður barna gagnvart trúarlegum og pólitískum áróðri, beinum og óbeinum. Grunnskólalög og siðareglur kennara banna mismunun vegna trúarbragða.
Hver hafa viðbrögð manna og félagasamtaka verið við gagnrýninni?
Flestir yppta öxlum í fyrstu en átta sig þegar þeir hugsa málið. Trúlausir og fólk annarra trúarbragða fagnar því að einhver þori og nenni að spyrna við fótum. Biskup talar hins vegar um “hatramma og þröngsýna heimshyggju”, prestur um “ofstækisfullt guðleysi, sem litlu eirir og fátt virðir” og skólastjóri um “ofstæki, sem jaðrar við frekju”. Siðmennt hefur bent á að Vinaleiðin brýtur í bága við lög og vegur að forræði foreldra í trúmálum. Ástrúarfélagið hefur tekið í sama streng sem og félög ungliða í stjórnmálum, bæði til hægri og vinstri.
Ert þú trúaður?
Nei. En ég er ekki að boða trúleysi, vil bara fá að hafa það í friði fyrir þjóðkirkjunni.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.