Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Nútíma einokunarverslun

Skúli Hansen, 29. október 2006

Árið 1602 hófst einokunarverslun Dana á Íslandi en tilgangur hennar var að sporna gegn áhrifum Hansakaupmanna á Íslandi. Danska einokunarverslunin var hræðilegt bákn á íslensku þjóðinni sem stóð til ársloka 1787, en 135 árum seinna eða árið 1922 hófst síðan starfsemi nýrrar „nútíma“ einokunarverslun á Íslandi, ÁTVR.

Samkvæmt 10. gr. áfengislaga hefur ÁTVR einkaleyfi til smásölu áfengis á Íslandi. Þessi lög gera það að verkum að engar verslanir fyrir utan ÁTVR geta selt áfengi sem er sterkara en 2,25%. Þessi lög brjóta mjög gróflega á grundvallarhugsjónum frjálshyggjunnar um að einkaaðilar eigi að halda uppi markaðnum en ekki ríkið. Það er vel vitað að einkaaðilar geta vel séð um sölu áfengis og eins og á flestum öðrum sviðum eru þeir mun hæfari til þess en hið opinbera.

Það liggur í augum uppi að ef ÁTVR yrði lagt niður og almenn sala áfengis í matvöruverslunum heimiluð, að þá myndi verð á áfengi snarlækka. Þetta myndi gerast sökum samkeppni, en með samkeppninni yrði áfengið ekki bara ódýrara heldur yrði bæði úrvalið meira og gæðin betri. Reynslan hefur sýnt fram á það erlendis að einkaaðilar eru mjög svo hæfir til þess að sjá um smásölu á áfengi og því er alveg óskiljanlegt afhverju einkaaðilar mega ekki sjá um smásölu áfengis á Íslandi.

Þeir sem eru á móti því að ÁTVR sé lagt niður halda því fram að ekki sé hægt að treysta einkaaðilum fyrir þeirri ábyrgð sem felst í því að passa upp á það að fólk undir aldri sé ekki að kaupa áfengi. En þetta er bara kolrangt, því að þvert á móti er vel hægt að treysta einkaaðilum fyrir því að skoða skilríki, nú þegar sjá einkaðilar um smásölu á tóbaki og reynslan hefur sýnt að þeir eru vel hæfir til forvarna. Svo er líka hægt að benda á það að ef að unglingar undir aldri ætla sér að ná í áfengi þá munu þeir ná sér í áfengi og þá skiptir engu máli hvort að það er hið opinbera eða einkaaðili sem sér um smásölu þess.

Ríkið á ekki að eiga verslanir að neinu tagi, alveg sama þó að tilgangurinn sé „góður“ þá er ekki undir neinum kringumstæðum hægt að réttlæta ríkiseinokun. Hið opinbera á að treysta einkaaðilum fyrir því að sjá um alla verslun sem fram fer í landinu. Að þessu sögðu skora ég á stjórnvöld landsins að leggja niður þessa hræðilegu einokunarverslun sem ÁTVR er og heimila einkaaðilum að hefja smásölu áfengis.

Höfundur situr í miðstjórn Hugins og er nemi við Verzlunarskóla Íslands.
grein birtist áður á www.sus.is 26.10.06

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.