Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Hvalveiðar

Róbert Eric Farestveit, 26. október 2006

Róbert Eric Farestveit

Ætli það séu ekki liðin um þrjú ár síðan við félagarnir mótmæltum veru Greenpeace á Íslandi með því að grilla hvalkjöt á hafnarbakkanum. Skipið Rainbow warrior lá þá við höfnina og þar mótmæltu Frode Playm og liðsmenn hans vísindaveiðum Íslendinga á hval. Vísindaveiðarnar voru þá mikið í fréttum og hafði sendiráðum og ráðuneytum borist mikið af fjöldapósti þar sem þúsundir manna mótmæltu harðlega veiðunum. Í skeytunum var hótað að sniðganga íslenskar vörur og Íslendingar hvattir til að láta af vísindaveiðum. Ég get ekki séð að þessi mótmæli hafi skilað sér því hróður íslenskra afurða úti í hinum stóra heimi hefur bara aukist. Sömu sögu hafa Japanir að segja en mótmælaaðgerðir hafa ekki haft nein sjáanleg áhrif á útflutning þar í landi.

Nú í síðustu viku var loks ákveðið að stíga skrefinu lengra og ákveðið að leyfa atvinnuveiðar á hval og engum til undrunar eru mótmælin hafin aftur og fjöldapóstsendingum rignir yfir sendiráðin. Nokkrir Íslendingar hafa einnig líst yfir áhyggjum og þá sérstaklega hagsmunaaðilar í hvalaskoðun. Þeirra rök hafa meðal annars verið að ekki eigi að stunda veiðarnar þar sem enginn markaður sé fyrir vörunni. Sem betur fer eru markaðsöflin það skemmtileg að enginn stundar iðjuna ef hún gefur ekki eitthvað til baka. Ætti því hvalveiðibannið ekki að vera óþarft ?

Margt hefur breyst á þeim árum sem hvalveiðibannið hefur verið í gildi. Hvölum hefur fjölgað gríðarlega og er áætluð stofnstærð á hrefnum nú talin yfir milljón og á langreyði milli 60 – 80 þúsund. Rök um útrýmingarhættu eru einfaldlega ekki gild lengur því veiðarnar verða ekki stundaðar nema í litlum mæli. Það sem þó virðist fara fyrir brjóstið á alþjóðasamfélaginu er að þetta eru atvinnuveiðar en ekki vísindaveiðar.

Það á eftir að koma í ljós hvort hvalveiðarnar verði umstangsins virði og hvort þær skili fullnægjandi tekjum. Afstaða alþjóðasamfélagsins til hvalveiða hefur þó mildast nokkuð og taka verður til greina að fólk hefur í dag önnur vandamál til að hafa áhyggjur af en hvalveiðum Íslendinga. Ég er þó bjartsýnn á að hvalveiðar og hvalaskoðun séu atvinnuvegir sem geti gengið saman. Eitt er þó víst að afstaða Íslendinga er skýr. Við viljum veiða.

Höfundur situr í stjórn Hugins.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.