Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Samhjálp og náungakærleikur frjálshyggjunar.

Erlingur Þór Tryggvason, 23. október 2006

Jafnaðarmenn berja oft á brjóst sér og segjast vera málsvarar ,,litla mannsins" og boðberar velferðar. Þeir ganga meira að segja svo langt að ásaka frjálshyggjuna sem vinveitta þeim ríku á kostnað hinna efnaminni. En ef við skoðum málið í kjölinn, hvað kemur þá í ljós?

Við eigum ekki að leitast eftir jöfnuði í samfélaginu.

Jöfnuður ætti ekki að vera markmið útaf fyrir sig. Það að allir hafi það gott og fái réttláta umbun fyrir vinnu sína og dugnað er mun mikilvægara en að leitast eftir óframkvæmanlegum jöfnuði. Öfundsýki er ljóður á samfélaginu og við eigum að fagna því ef samborgari okkar hefur það gott, jafnaðarmenn telja að eina leiðin til jöfnuðar sé að allir hafi það jafn ,,skítt" líkt og þekkist í kommúnistaríkjum heimsins. Ég tel hinsvegar að í stað þess að leitast eftir óframkvæmanlegum jöfnuði ætti frekar að skapa öllum tækifæri til tekjuöflunar á jafnréttisgrundvelli.

Réttlátt skattkerfi.

Skattkerfi sem letur menn til vinnu er meingallað. Hátekjuskattar, eignarskattar o.s.frv. eru skattar sem umbuna ekki hinum vinnusömu, heldur draga úr hvata til meiri vinnu og ýta undir skattsvik. Lausnin sem ungir Sjálfstæðismenn hafa oft bent á er flatur skattur á línuna. Slík skattheimta er sanngjörnust og eðlilegust ríkinu til tekjuöflunar. Ég minni á stjórnmálaályktun SUS frá nýafstöðnu milliþingi, en þar segir;

,,Ungir sjálfstæðismenn árétta að tilgangur skattkerfisins sé tekjuöflun fyrir ríkið en ekki tekjujöfnun í samfélaginu. Í því ljósi er lagt til að tekin verði upp flatur skattur. Slíkir skattar eru einfaldir í framkvæmd og sanngjarnir."

Bætur aðeins til þeirra sem þess þurfa. 

Styrkir og bætur frá ríkinu sem ekki er beint eingöngu að þeim er þess þurfa eru einfaldlega fásinna.  Byggðastyrkir til námsmanna, barnabætur o.s.frv. á aðeins að veita þeim er þess þarfnast, ef veita á þá yfir höfuð.  Bestu bæturnar sem ríkið getur veitt eru lágir skattar, það skilar mestri velferð og það til allra.     

Samhjálp frá einstaklingum og fyrirtækjum. 

Meiri ráðstöfun tekna gefur einstaklingnum og íslenskum fyrirtækjum betra færi til þess að taka þátt í góðgerðarmálum.  Íslensk fyrirtæki eru dugleg að styrkja og styðja við ýmis málefni og því ber að fagna.  Einstaklingar geta líka látið gott af sér leiða, því margt smátt gerir eitt stórt.  Við eigum að hvetja þá sem það geta til þess að láta gott af sér leiða, en ríkið á ekki að stunda einhvern ,,Hróa Hattar” leik á kostnað skattgreiðenda.       

Staðreyndin er sú að jafnaðarmennska fellur um sjálfa sig, því jöfnuður er ekki í eðli sínu eftirsóknarverður.  Einkaframtakið og frelsið skilar samfélaginu meiri verðmætasköpun, hærri tekjum og betri lífskjörum.   

Jöfnuður þýðir einfaldlega verri lífskjör.  

 

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.