Aðskilnaður ríkis og kirkju
Það er leiðinlegt til þess að hugsa að í dag er starfrækt bákn á Íslandi að nafni kirkjumálaráðuneytið. Enn leiðinlegra er að vita til þess að það ráðuneyti er fjármagnað af hverjum einasta íslenska skattgreiðanda en ekki einungis þeim sem styðja starfsemi þess. Hvert mannsbarn veit að það er að mörgu leyti farið illa með pening skattgreiðenda á Íslandi en sjaldan verður hræsnin meiri en þegar fólk er neytt til að fjármagna trúarðikun annarra.
Fjárlög fyrir árið 2006 gerðu ráð fyrir að 4,5 milljarðar íslenska króna færu til kirkjumála. Þetta er há upphæð en samt eru skattgreiðendur sem iðka önnur/engin trúarbrögð neyddir til að láta hluta af sínum tekjum renna í þennan fjárlagalið. Er virkilega réttlætanlegt að kúga fólk á þennan hátt?
Í frjálshyggjulandi eins og Íslandi eiga allir að hafa frelsi til að velja sér trúarbrögð (eða velja sér ekki trúarbrögð) og þá getur hver einstaklingur notað fé sitt í að fjármagna þá trú sem hann aðhyllist. Þessu á ríkið ekki að skipta sér að frekar en öðrum áhugamálum fólks. Ríkið á heldur ekki að troða einhverri ákveðinni trú upp á einstaklinga með því sem á að kallast trúarbragðakennsla í grunnskólum.
Það er hneyksli að ekki sé búið að aðskilja ríki og kirkju hér á landi fyrir löngu síðan. Án þess að gera lítið úr kristinni trú verður að segjast að trúarbrögð eru á undanhaldi í nútímasamfélagi og því er þarfara að eyða fé skattgreiðenda í eitthvað sem skiptir miklu meira máli. Leyfum fólki að ákveða sjálft hvort það fjármagni trú á Guð föður almáttugan, skapara himins og jarðar.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.