Huginn - félag ungra sjálfstćđismanna í Garđabć
Greinar

Verndum bćinn okkar

Skúli Hansen, 22. maí 2006

Skúli Hansen

Ég skoða svona af og til vefrit ungra hægri manna bæði á Íslandi og erlendis, bara svona til að sjá hvað aðrir hægrimenn eru að hugsa. En núna fyrir stuttu ákvað ég að skoða á netinu hvað pólitískir andstæðingar mínir væru að hugsa það er að segja hvað jafnaðarmenn væru að hugsa. Eftir að hafa lesið nokkrar greinar eftir frambjóðendur hins svokallaða Bæjarlista í Garðabæ hef ég fengið nokkuð góða innsýn í huga vinstrimanna.

Í fyrsta lagi þá byrja margar greinarnar eftir frambjóðendur Bæjarlistanns á því að reynt er að útskýra hversu gífurlega dýrt sé að búa í Garðabæ, talað er um að fjármálastjórn bæjarins sé óábyrg, að leikskólagjöld séu of há, að gjaldtaka sé ósanngjörn og að álögur á bæjarbúa séu með þeim hæstu á landinu. Svo tala frambjóðendur Bæjarlistanns um byggingu menningarmiðstöðvar sem á að innihalda hluti eins og bókasafn, sýningarsali, kaffistofu, fundaraðstöðu o.fl.

Eftir að hafa lesið þessar greinar Bæjarlistanns hef ég í sífellu spurt sjálfan mig hvort að frambjóðendur Bæjarlistanns búi einfaldlega í sama bæjarfélagi og ég, já ég hef mikið hugsað út í það hvort að þau séu ekki bara að tala um einhvern annan Garðabæ því að þessar lýsingar þeirra passa bara ekki við þann Garðabæ sem ég bý í.

Til að byrja með þá er alls ekki dýrt að búa í Garðabæ miðað við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Sem dæmi má nefna að leikskólagjöld í Garðabæ eru mjög sambærileg leikskólagjöldum annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Og það má nefna það að leikskólaseta er ekki skylda á Íslandi og því er ekki nauðsynlegt fyrir börn að vera í leikskóla. Þar með er það betri kostur að hafa örlítið hærri leikskólagjöld á þá foreldra sem kjósa að setja börn sín í leikskóla í staðinn fyrir að láta alla bæjarbúa borga fyrir forréttindi leikskólabarna í gegnum skatt.

Hvað varðar ásakanir frambjóðenda Bæjarlistanns um óábyrga fjármálastjórn og álögur sem eiga víst að vera með þeim hæstu sem þekkjast á landinu þá hef ég þetta um þær að segja. Ég fór á heimasíðu Sambands Íslenskra Sveitarfélaga og fann þar upplýsingar um útsvar. Þar fann ég þær upplýsingar um útsvar 2006 að útsvar í Garðabæ væri 12,46%, útsvar í Hafnarfirði væri 13,03% og að útsvar í Reykjavík væri 13,03%. Svo komst ég einnig að því að hámarksútvar væri 13,03%, lágmarksútsvar væri 11,24% og meðalútsvar væri 12,97%. Semsagt ekki bara erum við langt frá því að vera meðal þeira sveitarfélaga sem mestu álögurnar hafa heldur erum við meira að segja langt undir meðaltalinu. Og svo má líka nefna að bærinn var rekinn í fyrra með 500 milljón króna tekjuafgangi.

Mig langar líka að lokum að benda á það að sú hugmynd frambjóðenda Bæjarlistanns um að setja á stokk einhverskonar menningarmiðstöð er ekki bara dýr, heldur heimskuleg og óþörf. Við höfum fyrir bókasafn og ágætis bæjarkjarna á Garðatorgi og hvað varðar kaffihús, fundarsal og sýningarsal þá eru það allt hlutir sem einkaaðilar eiga að sjá um að skipuleggja og reka en ekki bærinn.

Garðabær er því ekki bara góður bær heldur frábær bær sem önnur sveitarfélög mættu taka sér til fyrirmyndar. Þess vegna hvet ég bæjarbúa í næstkomandi kosningum að hugsa sig um hversu gott lífið er í þessum yndislega bæ og kjósa Sjálfstæðisflokkinn.

Höfundur er stjórnarmaður í Hugni, félagi ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ.

Fréttabréf

Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.