Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Fáránleg ritskoðun

Skúli Hansen, 12. október 2006

Skúli Hansen„73. gr. [Allir eru frjálsir skoðana sinna og sannfæringar.
Hver maður á rétt á að láta í ljós hugsanir sínar, en ábyrgjast verður hann þær fyrir dómi. Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða.
Tjáningarfrelsi má aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherjarreglu eða öryggis ríkisins, til verndar heilsu eða siðgæði manna eða vegna réttinda eða mannorðs annarra, enda teljist þær nauðsynlegar og samrýmist lýðræðishefðum.

Svona hljómar sú grein Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands sem snýr að tjáningarfrelsinu, en er í raun og veru algjört rit- og tjáningarfrelsi á Íslandi? Svarið er því miður nei. Samkvæmt 20. gr. áfengislaga og 7.gr. laga um tóbaksvarnir eru allar auglýsingar á áfengi og tóbaki bannaðar hér á landi.

Það að sekta menn fyrir það eitt að auglýsa vöru sem þeir ætla sér að selja með löglegum hætti er algjörlega út í hött og leiðir aldrei til góðs. Gott dæmi um svona sektun átti sér stað í dag 11. október 2006 þegar að framkvæmdastjóri Rolf Johansen & Co ehf var dæmdur til að greiða 600 þúsund króna sekt fyrir fimm áfengisauglýsingar sem hann lét birta á árinu 2005. Það er ekki rökrétt í ríki sem státar sér af frjálsum markaði að refsa mönnum fyrir það að vilja koma vöru sinni á framfæri.

Sagan hefur sýnt það og sannað að eftir því sem bæði markaðurinn og einstaklingurinn verða frjálsari þeim mun betur gengur efnahagur ríkisins. Það er ekki gott fyrir markaðinn að banna söluaðilum að auglýsa vöru sína, alveg sama hvort að einhverjum aðilum í ríkisstjórn finnst þetta vera hættuleg vara eða ekki. Það er verkefni neytenda að ákveða það hvaða auglýsingar ganga og hverjar ekki og þetta gera þeir með því að velja eða hafna vörunni. Hið opinbera á að hafa meiri trú á viti og mætti einstaklingsins en raun ber vitni.

Tjáningarfrelsið er eitt það mikilvægasta sem hver einstaklingur á og þess vegna á hið opinbera ekki að setja því siðgæðisskorður. Því skora ég á yfirvöld að hafa meiri trú á neytendum landsins, hætta allri óþarfa ritskoðun og leyfa þar með auglýsingar á áfengi og tóbaki.

Höfundur situr í miðstjórn Hugins og er nemi við Verzlunarskóla Íslands.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.