Prófkjör eru rétta leiðin
Prófkjör
Hafinn er tími prófkjörsbaráttu í Sjálfstæðisflokknum fyrir komandi alþingiskosningar í vor. Nú virðist sem Sjálfstæðisflokkurinn muni í nær öllum kjördæmum velja prófkjörsleiðina til að mynda framboðslista fyrir baráttuna í vor. Það er vel.
Prófkjör er rétta leiðin
Prófkjör eru, þegar á heildina er litið, réttlátasta leiðin fyrir stjórnmálaflokka til að mynda framboðslista. Enginn fámennur hópur getur speglað vilja flokksmanna betur en flokksmenn sjálfir, það sanna ,,óvænt” prófkjörsúrslit í gegnum árin. Gjarnan er bent á að mikill kostnaður við prófkjör standi í vegi fyrir mörgum sem myndu annars vilja gefa kost á sér. Við því er að segja að enginn verður óbarinn biskup! Vinir, ættingjar, skoðanasystkin og aðrir velunnarar frambjóðenda eru nær undantekningarlaust tilbúnir að leggja hönd á plóg í kosningabaráttunni, nú ef ekki þá kann það hugsanlega að segja nokkuð um viðkomandi frambjóðanda og að kjörþokka og sannfæringarkraft sé ekki til að dreifa í nægilegu magni. Flokksfélögin standa einnig fyrir útgáfu kynningarblaðs og kynningarfundar fyrir frambjóðendur innan flokksins auk þess sem internetið er ódýr og þægilegur kynningarvettvangur sem allir ættu að geta nýtt sér með góðra manna hjálp. Það ætti því enginn að þurfa að týnast í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins.
Mikilvægi þátttöku
Lýðræðislegt stjórnarfyrirkomulag byggir á því að fólk taki þátt í þeirri ákvarðanatöku og stefnumótun sem í stjórnmálum felast. Það er ánægjulegt að sjá hve margir eru tilbúnir að gefa kost á sér til þátttöku í þeim prófkjörum sem framundan eru. Þeir sem gefa kost á sér í prófkjöri og heyja heiðarlega baráttu fyrir sjálfum sér og skoðunum sínum standa sterkir á eftir, hvernig svo sem úrslit ráðast. Allir kosningabærir einstaklingar ættu að finna fyrir mikilvægi þess að sýna frambjóðendum og lýðræðinu sjálfu þá virðingu að kjósa. Það búa nefnilega því miður ekki allir svo vel í heiminum að eiga möguleika á slíku.
Höfundur er fyrrum stjórnarmaður í Hugin og SUS
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.