Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Treystum frelsinu

Einar Björgvin Sigurbergsson, 5. október 2006

Einar Björgvin Sigurbergsson

„In this present crisis government is not the solution to our problem, government is the problem“. Svo mælti Ronald Wilson Reagan þann 20. janúar 1981, í innsetningarræðu sinni sem forseta Bandaríkjanna. Þetta er óvenjulegt hugrekki af stjórnmálamanni, sérstaklega þegar það er haft í huga efnahagsástand þess tíma í Bandaríkjunum sem einkenndist af vonleysi. Ronald Reagan var ávallt trúr sannfæringu sinni sem forseti Bandaríkjanna. Hann taldi einstaklinginn vera best færan til að fara með eigin fjármuni og samstarf íbúa landsins, á frjálsum markaði, best til þess fallið að koma hjólum efnahagslífsins í gang. Með þessa sannfæringu sína að leiðarljósi, lækkaði hann skatta og minnkaði skrifræði. Og viti menn, framleiðni jókst og kakan stækkaði og úr varð lengsta hagsældarskeið sem íbúar Bandaríkjanna höfðu upplifað.

Þessi bjargfasta trú Ronald Reagan á það að einstaklingurinn væri best til þess fallinn að stjórna eigin málum kristallast einna skýrast í ræðu sem hann hélt til stuðnings Barry Goldwater í forsetaframboði hans árið 1964. Í ræðunni, sem yfirlett er nefnd, A time for choosing, mælti Reagan svo:„ This is the issue of this election. Whether we believe in our capacity for self-government or whether we abandon the American revolution and confess that a little intellectual elite in a far-distant capital can plan our lives for us better than we can plan them ourselves.“

Það væri óskandi að stjórnmálamenn hvar sem eru í heiminum hafi meiri trú á samborgurum sínum. Gefi þeim færi á að ráða ferðinni í eigin lífi. Nú þegar kemur að prófkjörum víða um land ættu þeir hyggja á frama í stjórnmálum að virða rétt fólksins í landinu til að ráðstafa arði eigin vinnu og ekki líta á peningana sem streyma inn í ríkiskassann sem peninga sem enginn á. Mikil vinna hefur farið í að afla þeirra, þeir eru best komnir hjá þeim sem lögðu þá vinnu á sig.

Höfundur situr í miðstjórn Hugins

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.