Hrós til ungra jafnaðarmanna.

Það er nú ekki á hverjum degi sem manni gefst tækifæri til að hrósa ungum jafnaðarmönnum fyrir góðar ályktanir, en í dag er sá dagur.
Ungir sjálfstæðismenn hafa lengi bent á kosti einkarekstrar í heilbrigðiskerfinu og nú virðast ungir jafnaðarmenn loks vera okkur sammála. Á landsþingi ungra jafnaðarmanna var, ekki í fyrsta skiptið, samþykkt sú ályktun að stefna á einkarekstur í heilbrigðiskerfinu í meiri mæli. Benda þeir á þá augljósu kosti sem slíkt rekstrarform hefur fram yfir ríkisrekstur, eins og bætt þjónusta, minni biðtíma og aukin hagræðing. Ég fyrir mitt leyti tek heilshugar undir með ungum jafnaðarmönnum í þessum málum og hrósa þeim fyrir að samþykkja þessa ályktun. Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu hefur sannað ágæti sitt hér á landi og það ætti að vera markmið stjórnvalda að ýta undir að sem mest af rekstri heilbrigðiskerfisins verði komið í hendur einkaaðila. Það er hagur sjúklinga, starfsfólks og síðast en ekki síst skattgreiðenda að einkavæða í heilbrigðisgeiranum.
En ekki nóg með að ungir jafnaðarmenn komi með þessi ágætu ályktun um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu, heldur eru þeir einnig frelsisfylgjandi þegar kemur að rétti aðila í heilbrigðiskerfinu til að auglýsa. Það er með öllu óskiljanlegt að söluaðili á þjónustu megi ekki auglýsa þá þjónustu sem hann býður upp á. Þetta leiðir að sjálfsögðu til þess að neytandinn fær ekki upplýsingar um þá þjónustu sem honum býðst og getur því ekki tekið upplýsta ákvörðun um hvert hann ætti helst að leita eftir þeirri þjónustu sem honum vanhagar um. Fyrir utan það þá myndu auglýsingar ýta undir samkeppni sem lang oftast leiðir til aukinna gæða og hagræðis fyrir neytandann.
Svona til eftirbreytni birti ég hér að neðan ályktun UJ í heild, en vil þó ítreka að ég tel hana ekki gallalausa, en vissulega stórt skref í rétta átt.
,,Einkarekstur í heilbrigðisþjónustu, svo sem heilsugæslu, er annað sem H&F kynnti sér sem leið til aukinnar hagræðingar. Hér er ekki átt við einkavæðingu þar sem einstaklingar borga fyrir þjónustuna. Einkarekstur er þegar hið opinbera kaupir þjónustu fyrir hönd sjúklinga t.d. af einkaaðilum eða heilbrigðisstarfsfólki. Einkaaðilar og aðrir eiga að geta rekið heilbrigðisþjónustu ef tryggt er að gæði hennar minnki ekki, kostnaðarhluti sjúklinga eykst ekki, hagræðing náist í þjónustunni og að sjúklingar geti ekki keypt sér betri þjónustu eða betri aðgang að henni. Ef þessi skilyrði eru ekki fyrir hendi skal þjónustan vera á vegum hins opinbera. Þegar um einkarekstur er að ræða þarf að efla eftirlit hins opinbera með þjónustunni þannig að hið opinbera sé að borga rétt verð við gæðaþjónustu sem sannarlega hefur verið veitt. Einnig, með auknum einkarekstri þarf að skoða hvort leyfa eigi heilbrigðisstarfsfólki og öðrum sem bjóða upp á heilbrigðisþjónustu að auglýsa þjónustu sína. Slíkar auglýsingar gætu leitt til upplýstari vals sjúklinga og aukið samkeppni á milli þessara aðila.”
Nú vonar undirritaður bara að UJ haldi áfram á þessari braut og sjái betur að frelsið er rétta leiðin. Þrátt fyrir að einkaaðilar í rekstri séu jafn misjafnir og þeir eru margir, er staðreyndin sú að ríkið er engu betra, þó síður sé. Einkaaðilar hafa sýnt það í þeim fyrirtækjum sem einkavædd hafa verið að þeim er vel treystandi til þess að takast á við öll þau verkefni sem ríkið í dag hefur á sinni könnu.
Enn og aftur til hamingju ungir jafnaðarmenn.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.