Besta greinin

Jöfnun og flélagslegt rétlæti, rótæk biltingahusjón og kröfur um sjálfbæra þróunn fer ekki saman við markaðshiggjuna sem mun ávalt verða valdur að eygin endalokum. Texti sem skrifaður er á þennan hátt er ekki mjög líklegur að ná vinsældum á hinum kröfuharða markaði lesenda. En sem betur fer búum við Íslendingar við það frelsi að mega skrifa það sem við kærum okkur um, innan þeirra marka þó, að það skaði ekki aðra. Frelsi einstaklinga er lykilatriði velmegunar og spilar efnahagslegt frelsi þar stóran þátt ekki síður en málfrelsið.
Það eru ekki allir íbúar jarðarinnar jafn lánsamir þegar kemur að efnahagslegu frelsi og er því ánægjulegt að sjá þegar einhverjir helga tíma sínum til baráttu þess. Frasier Institute gaf á dögunum út skýrsluna Economic Freedom of the World: 2006 annual report. Þar gerir stofnunin ítarlega úttekt á efnahagslegu frelsi í löndum heimsins og hafnaði Ísland í 9. sæti, en árið 1985 vorum við í 62. sæti. Á sama tíma hafa lífskjör fólks hér á landi stóraukist. Við megum þó ekki slappa af í þessum efnum.
Þrátt fyrir að Ísland hafi tekið gríðarlegum framförum á sviði efnahagslegs frelsis síðastliðin 20 ár megum við aldrei sofna á verðinum. Það er verðugt verkefni frelsisunnenda framundan að skilgreina næstu sóknarfæri á þessu sviði og eru ungir sjálfstæðismenn þar vel á vegi staddir. Framundan er málefnaþing SUS þar sem okkur gefst tækifæri á að leggja okkar af mörkum til baráttu frelsisins.
Mikilvægt er að SUS setji sér framsækin en í senn raunsæ markmið og haldi uppi þessari vel heppnuðu baráttu sem það hefur svo sannarlega átt mikinn þátt í.
Höfundur situr í stjórn Hugins.
Economic Freedom of the World er samstarfsverkefni fjölda stofnana sem tileinka sér efnahagslegu frelsi og er íslenska stofnunin RSE þar á meðal.
Hćgri.is
Fréttabréf
Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.