Huginn - félag ungra sjálfstćđismanna í Garđabć
Greinar

Ekki gera góđverk ţín á kostnađ annarra!

Erlingur Ţór Tryggvason, 4. maí 2006

Erlingur Ţór TryggvasonNú styttist í sveitarstjórnarkosningar og flokkar um allt land keppast við að lofa kjósendum öllu fögru. Í þessum hafsjó fagurra loforða spyr maður sig, hver á að borga? Það hefur nefnilega ekki farið fram hjá kjósendum að loforðunum fylgir sjaldnast nokkur skýring á því hvernig standa skal straum af auknum kostnaði sem þeim mun fylgja.

Sum loforðanna hafa vakið meiri athygli en önnur. Þar ber helst að nefna loforð Samfylkingarinnar í Reykjavík um gjaldfrjálsa leikskóla, sem er í hæsta máta undarlegt. Eins og staðan er í dag í leikskólamálum Reykjavíkurborgar komast börn seint að í leikskólum, biðlistar eru langir og leikskólunum er lokað í heilan mánuð á hverju sumri. Svona er staðan í leikskólamálum Reykjavíkur meðan innheimt eru leikskólagjöld. Hvernig verður staðan án þeirra? Mega borgarbúar eiga von á lengri sumarlokunum og lengri biðtíma eftir leikskólaplássi? Skynsamlegra væri að bæta þjónustuna fremur en að fella niður gjöldin. Gleymum því ekki að borgarstjórn hækkaði nýlega útsvar í hámark og tók því vænan bita úr launaumslagi borgarbúa. Það væri því heillavænlegra að bjóða borgarbúum sanngjarna kauphækkun með því að lækka útsvarið, eða fasteignaskattana frekar en að stofna til nýrra útgjalda sem skattgreiðendur þurfa að lokum að kosta. Lítil hugdirfska er fólgin í því að slá sig til riddara á kostnað umbjóðenda sinna.

Þannig er málum nefnilega oftar en ekki háttað. Stjórnmálamenn gera sín góðverk á kostnað skattborgara. Næst þegar við heyrum fagurgala og fögur loforð pólitíkusa, minnumst þess þá úr hvaða vasa gulleggið greiðist.

Erlingur Þór Tryggvason
formaður Huginn, félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ


Grein birtist áður í Morgunblaðinu 23. apríl 2006

Fréttabréf

Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.