Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Friðsöm mótmæli?

Skúli Hansen, 1. september 2006

Þessa dagana hefur verið mikið fjallað um mótmæli gegn Kárahnjúkavirkjun í fréttum, mótmælendurnir sjálfir segjast vera friðsamlegir og að mótmælin séu friðsöm en ekki eru allir á sama máli um það hvað má skilgreina sem friðsöm mótmæli.

Út frá hugsjónum frjálshyggjunnar mætti segja að friðsöm mótmæli væru hvers konar mótmæli sem skaða hvorki frelsi einstaklingsins né eignarétt hans. Góð dæmi um svona mótmæli er þegar að fólk skrifar undir mótmælendaskjal, segir upp starfi, stendur við Austurvöll og hlustar á mótmælafund eða einfaldlega mætir á opinn stjórnmálafund og lýsir yfir mótmælum sínum.

En þetta er ekkert í líkingu við hin svokölluðu „friðsömu“ mótmæli sem að náttúruverndarsinnar hafa staðið fyrir núna upp á síðkastið. Í fréttum hafa birst myndir af fólki sem hefur m.a. farið inn á hættuleg vinnusvæði og hlekkjað sig við vinnutæki eða klifrað upp í rúmlega 50 metra háa krana og þar með komið bæði sjálfum sér og öðrum í mikla hættu. Þó slær nú gíslatakan á starfsmönnum Hönnunar í Reyðarfirði allt út. Eftir á birtast þessir mótmælendur síðan í fréttum og skamma lögregluna fyrir það að hafa eyðilagt það sem að þeir kalla „friðsöm“ mótmæli.

Að mínu mati er engan veginn hægt að skilgreina eignaspjöll og gíslatökur sem friðsöm mótmæli því að báðir þessir hlutir brjóta á þeim tveimur grundvallarmannréttindum sem hver einasta manneskja á að eiga rétt á, frelsi einstaklingsins og eignafrelsinu. Það er mjög jákvætt að fyrirtæki og einstaklingar séu ekki hræddir við að kæra þá mótmælendur sem brjóta á rétti þeirra. Það er heldur ekkert óeðlilegt við það að lögreglan hafi afskipti af þessum svokölluðum „friðsömu“ mótmælum ef að mótmælendur stofna öryggi sínu eða annarra í hættu enda er það einmitt aðalstarf lögreglunnar að vernda öryggi almennra borgara.

Eignaspjöll, brot á öryggi annarra og frelsissviptingar á borð við gíslatökuna á Reyðarfirði í fyrradag eiga aldrei að vera vel liðin atvik, alveg sama hver málstaður afbrotamannanna er, lögbrot er lögbrot alveg sama hver framkvæmdi brotið eða hver tilgangurinn var. Allir eiga rétt á sinni skoðun og fólk á að virða skoðanir annarra en ekki að brjóta á frelsi þeirra.

Að þessu sögðu vil ég hvetja mótmælendur til að sýna skoðunum, frelsi, eignum og öryggi annarra virðingu og notast frekar við mótmælaaðferðir sem eru í raun og veru friðsamar.



Skúli Hansen
stjórnarmaður í Hugin f.u.s. í Garðabæ

(grein birt á www.hugsjonir.is þann 21. ágúst)

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.