Um mótmælaaðferðir vinstri manna
Þetta sumarið hafa mómtæli mikið verið til umfjöllunnar og þá einkum mótmæli gegn virkjanaframkvæmdum. Varla hefur verið hægt að fletta í gegnum einn einasta fjölmiðil án þess að rekast á frétt um mótmælendatjaldbúðir á Kárahnjúkum þrátt fyrir að þar hafi aðeins verið örfáar hræður. Þessar fréttar hafa nánast allar verið á sama veg: „mótmælendur frömdu lögbrot er þeir fóru í leyfisleysi inn á vinnusvæði Alcoa og stöðvuðu löglega atvinnustarfsemi en eru hins vegar undrandi á því að lögreglan hafi beitt hörku við að fjarlægja þau af svæðinu“. Einu sinni birtist reyndar frétt þess efnis að eiturlyf hefðu fundist í tjaldbúðum mótmælenda en það kom svo sem ekki mikið á óvart.
Þeir sem standa fyrir þessum tjaldbúðum eru ein siðblindustu samtök sem finnast á Íslandi í dag, Íslandsvinir, en þeirra er aðallega minnst fyrir morðhótun sína á hendur Valgerði Sverrisdóttur sem birtist á mótmælendaspjaldi. Þeir hafa barist harkalega gegn stóriðjuframkvæmdum á Íslandi og greinilegt er að siðferðiskenndin meðal þeirra er engin. Talsmaður Íslandsvina, Andrea Ólafsdóttir, sat fyrir svörum í Kastljósinu síðastliðinn miðvikudag og þegar hún var spurð út í lögbrot mótmælenda á þeirra vegum þá sagði hún einfaldlega að hún hefði meiri áhyggjur af framkvæmdum Alcoa og lét þar með líta út fyrir að aðgerðir mótmælenda væru allt í lagi. Skv. Andreu Ólafsdóttur, talsmanni Íslandsvina, er það sem sagt allt í lagi að fremja lögbrot sem beinist gegn löglegu athæfi ef maður er persónulega á móti athæfinu sjálfu. Andrea taldi sig reyndar hafa heimildir fyrir því að framkvæmdir Alcoa væru ólöglegar en seinna kom á daginn að það var eins og hvert annað bull sem hún lét út úr sér.
Það er svo sem ekkert nýtt að vinstri menn skuli ganga langt í mótmælaaðgerðum en flestir muna líklega eftir því þegar ráðist var inn á fund á Hótel Nordica síðasta sumar og grænu skyri slett yfir fundarmenn og tækjabúnað sem skemmdist fyrir vikið. Alltaf eru afsakanirnar þó eins, tjón af þessu tagi er allt í lagi þar sem tjónið á náttúrunni er meira að mati þessa fólks.
Undirritaður furðar sig á þessum mótmælaaðgerðum, ekki bara vegna þess að þær eru siðlausar og jafnvel ógeðslegar heldur eru þær hreinlega lélegar og skemma fyrir málstaðnum. Það er löngu kominn tími til þess að vinstri menn hætti algjörlega að verja þessi athæfi og auðvitað taka þátt í þeim líka og fari nú að haga sér eins og fullorðið fólk. Það er miklu betra að ræða hlutina á málefnalegum nótum heldur en að láta eins og fífl
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.