Reykingabann
Þann 1. júní árið 2007 mun ákveðinn hópur íslenskra borgara verða beittur kúgun af þeim aðila sem hefur einkarétt á slíkum gjörðum hér á landi, ríkinu. Þennan dag tekur svokallað reykingabann, sem nú hefur verið samþykkt á alþingi, gildi á veitinga- og skemmtistöðum. Löggjöf af þessu tagi hlýtur að teljast kúgun þar sem ríkið er farið að skipta sér að því hvað fer fram á stöðum sem það á ekkert í. Einnig er forsjárhyggjan í hámarki enda er ekki lengur treyst á einstaklinginn (í þessu tilviki veitingahúsaeigendur) til að móta skipulagsform samfélagsins, greinilegt er að hið opinbera á að vera með puttana í öllu.
Eins og staðan er í dag eru bæði til veitinga- og kaffihús hér á landi þar sem reykingar eru leyfðar og bannaðar. Þetta er til komið því hingað til hefur ríkið gefið eigendum slíkra staða val til að ákveða hvort slíkar athafnir skulu vera leyfðar á eigin stöðum. Þar með geta borgarar landsins valið milli kaffihúsa eftir því hvort þeir vilja sitja í reykjarmekki eður ei og það sama á við um starfsfólk staðanna. Enginn getur neytt mann til þess að heimsækja kaffihús þar sem reykingar eru leyfðar, það er einungis valkostur fyrir hvern og einn og þar með er ekki brotið á rétti neins. Aftur á móti brýtur það á rétti kaffihúsaeigenda að setja á boð og bönn sem neyða þá til að banna reykingar á stöðum sínum.
Það á ekki að vera hlutverk ríkisins að setja fólki siðareglur. Þó það sé hugsanlega ljótur ósiður að anda að sér tóbaksreyk þá þarf hið opinbera ekki að banna slíkar athafnir á eigum annarra og ætti hreinlega ekki að skipta sér neitt að því þó ákveðnir aðilar tileinki sér slíkan ósið. Samfélagið mun alltaf dæma fólk út frá gjörðum sínum en það á ekki að vinna að því að móta fólk inn í eitthvað fyrirmyndarríki eins og öfga vinstrimenn hafa reynt sums staðar. Reykingabann á kaffihúsum er fasísk hugsjón og undirritaður er á móti slíkum hugsjónum. Leyfum eigendum kaffihúsa frekar að hafa val til að banna og val til að leyfa, þá höfum við hin líka úr meiri fjölbreytni úr að ráða þegar við ákveðum að fara á kaffihús.
Hćgri.is
Fréttabréf
Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.