Þarf að hækka stýrivexti Seðlabankans?
Nú hefur neysla landans komið efnahagskerfinu, bókstaflega í kerfi. Það eyðslufyllirí sem Íslendingar hafa dottið í síðastliðin ár, er að skila erfiðum timburmönnum. Verðbólgan er komin meira en 100% yfir verðbólgumarkmið Seðlabankans og stefnir enn hærra. Nú er aðgerða þörf og ríkisstjórnin, sveitarfélögin og Seðlabankinn virðast hafa tekið höndum saman í því að berjast gegn því verðbólguskoti sem nú ríkir. Þeirra aðgerðir felast í fækkun á framkvæmdum og hækkun á stýrivöxtum Seðlabankans. Það verðbólguskot sem við búum við í dag er vissulega áhyggjuefni, en er verið að taka rétt á því?
Vissulega er rétt að draga úr framkvæmdum hjá hinu opinbera, enda þær sennilega ein helsta orsök verðbólgunarinnar. Virkjanir, göng og önnur eyðsla hins opinbera á tímum góðæris í þjóðfélaginu er ávísun á vandræði. Einmitt þegar þjóðfélagið er í mikilli uppsveiflu og hætta er á þenslu, er nauðsynlegt fyrir sveitarfélögin og ríkið að halda að sér höndum. Ríkið ætti frekar að ráðast í kostnaðarsamar framkvæmdir séu tímar erfiðir, einmitt til að hleypa fjármagni í umferð til að lífga markaðinn við, ef þörf krefur.
Fréttir af nýjum stýrivaxtahækkunum dynja á landann í næstum hverjum fréttatíma. Nú er svo komið að þeir eru svo háir að annað eins þekkist ekki í hinum vestræna heimi. Þetta skilar sér í hærri greiðslubyrði lána, minnkun á kaupmætti og í það heila verri fjárhagstöðu heimilanna. En eru þessar hækkanir í raun nauðsynlegar?
Mér þætti líklegra til árangurs að dregið yrði stórlega úr framkvæmdum hjá hinu opinbera og hætt við risavaxin og dýr verkefni. Eins og áður kom fram eru sveitarfélögin og ríkið vissulega að sýna lit í þá átt, en betur má ef duga skal. Nauðsynlegt er að fresta eða hætta alveg við tónlistarhallir, hátæknisjúkrahús og fleiri framkvæmdir. Hver er trúverðuleiki ríkisstjórnar er hvetur almenning til að sýna aðhald og halda að sér höndum, meðan það sjálft ræðst í ótímabærar og kostnaðarsamar framkvæmdir? Bara það sem ríkið myndi spara ef hætt yrði við hið risavaxna tónlistarhús myndi hjálpa gríðarlega við það að halda verðbólgunni í skefjum.
Ríkisstjórnin hefur staðið sig ágætlega í fjármálastjórn ríkisins, skuldir hafa lækkað gífurlega, hagvöxtur verið mikill og kaupmáttur launa stóraukist. En þrátt fyrir þetta eru skattar enn alltof háir, útgjöld ríkisins mikil og ríkið í ótal óþarfa og óeðlilegum rekstri. Maður spyr sig hvort betur gengi ef það myndi einbeita sér eingöngu að þeim málum sem það á í raun ætti erindi að, en ekki einhverjum gæluverkefnum pólitíkusa, fyrirtækjarekstri eða því um líku.
Vaxtahækkanir og verðbólga eru almenningi dýr og ef hið opinbera er ekki til þess bært að halda því skefjum, er kannski rétt að draga tilvistarrétt þess í efa?
Kannski hefði titillinn frekar átt að vera ,,er þörf á hinu opinbera”?
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.