Huginn - félag ungra sjálfstćđismanna í Garđabć
Greinar

Ég er femínisti

Ólafur Örn Nielsen, 26. júní 2006

Ólafur Örn NielsenÍ ljósi nýafstaðins kvenréttindadags vil ég óska öllum konum, til sjávar og sveita, innilega til hamingju með bleika daginn. Nú þegar konur halda áfram baráttunni með góðan byr í seglum er viðeigandi að kynna og minna á hugmyndir einstaklingsmiðaðra femínista (e. individualist feminists).

Einstaklingsmiðaðir femínistar berjast fyrir jafnrétti kynjanna út frá því að litið sé á konur og karla sem einstaklinga. Einstaklingsmiðaður femínismi gerir ekki upp á milli karla og kvenna þegar kemur að lögunum. Þær hugmyndir sem stundum hafa verið uppi um að leiða eigi í lög reglur um hlutdeild karla og kvenna í hinum ýmsu störfum eru hættulegar. Jafnrétti verður ekki náð með jákvæðri mismunun. Já, hvað er eiginlega jákvætt við mismunun?

Á undanförnum árum hefur konum tekist vel til í baráttu sinni en það sem vantar e.t.v. upp á er ákveðin hugarfarsbreyting í þjóðfélaginu. Þegar konur hafa náð jöfnum rétti karla gagnvart lögunum er það jú þjóðin sem þarf að breyta viðhorfi sínu til kvenna. Það er hins vegar mikilvægt, eins og áður kemur fram, að þessi hugarfarsbreyting verði í þá átt að litið verði á konur og karla sem einstaklinga.

Þegar kemur að fyrirtækjum og stjórnendum þeirra að ráða starfsfólk í hin ýmsu störf er það hagur fyrirtækisins að velja þann einstakling sem er hæfastur, burtséð frá því hvort kynfærið hann hefur. Ef ein kona og einn karl sækja um sama starfið og konan er hæfari, þá að sjálfsögðu er það hagur fyrirtækisins að ráða konuna. Að sama skapi er það hagur fyrirtækisins að ráða karlinn sé hann hæfari.

En af hverju hefur raunin verið önnur? Ég held að allir geti verið sammála um að það sé ekki vegna þess að konur séu almennt vanhæfari en karlar. Ég trúi því að ef allir leggjast á eitt að breyta viðhorfum gagnvart konum, konur verði hvattar til dáða og að skapaður verði jafn lagagrundvöllur milli einstaklinga, burtséð frá kynferði, munum við sjá að markaðurinn mun finna það jafnvægi sem alla femínista dreymir um.

Ég trúi á hugmyndir einstaklingshyggjunnar og get ég því sagt að ég er femínisti.

 

Greinin birtist í Morgunblaðinu 26. júní 2006.

Fréttabréf

Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.