Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Greinar

Ársreikningur Garðabæjar

Einar Björgvin Sigurbergsson, 22. júní 2006

Nú á dögunum var ársreikningur Garðabæjar sendur á öll heimili í bænum. Var hann að venju glæsilegur og til marks um góða fjármálastjórn í bænum. Eitt rak ég þó augun í en það var að á síðasta ári skilaði bæjarsjóður rúmlega 500 milljóna króna hagnaði, telst það dágott þegar flest sveitarfélög á Íslandi eru rekin með tapi eða í það minnsta rétt á núllinu.

Þá er stóra spurningin sú: hvað ættu nýkjörnir bæjarfulltrúar að gera við þennan mikla hagnað? Ég ætla að vera svo lítillátur að koma með tvær hugmyndir. Annars vegar myndi ég vilja stinga upp á því að bæjarsjóður noti ríflegan hluta hagnaðarins til greiða niður skuldir sínar. Með því að gera það myndi vaxtakostnaður bæjarsjóðs minnka og búið yrði í haginn fyrir framtíðiðina enda er ekki víst að bæjarsjóður muni allaf koma til með að standa svona vel.

Hins vegar datt mér í hug að bæjarfulltrúar gætu greitt til baka einhvern hluta af þessum peningum, enda eru þeir komnir frá útsvarsgreiðendum en hafa ekki myndast sjálfkrafa inn á bankareikningum bæjarsjóðs. Myndi ég þá telja að nærtækt væri að endurgreiða fasteignagjöld til bæjarbúa enda hefur bæjarsjóður haft umtalsverðar óvæntar tekjur af þeim að undanförnu vegna mikillar hækkunar á fasteignamati. En sem kunnugt er eru fasteignagjöld reiknuð sem ákveðið hlutfall af fasteignamati. Auðvitað ætti síðan að lækka fasteignagjöldin sem og aðrar álögur á bæjarbúa.

Að lokum hvet ég bæjarfulltrúa til að hafa það hugfast í störfum sínum að þeir peningar sem þeir hafa úr að spila koma frá bæjarbúum. Nauðsynlegt er að Garðabær verði áfram í fremstu röð þeirra sveitarfélaga sem skattleggja íbúa sína sem minnst. Grunnurinn að því er ábyrg fjármálastjórn með það að leiðarljósi að fara ekki í óþarfar framkvæmdir sem koma niður á kjarnaverkefnum sveitarfélagsins.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.