Forgangsröðun gæluverkefna
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar, í byrjun febrúar, varsamþykkt að styrkja Garðasókn sem nemur fimmtán milljónum króna úr bæjarsjóði svo kirkjan geti keypt þrjátíu milljóna orgel. Það sem vakti athygli mína sérstaklega er að ekki einn einasti bæjarfulltrúi greiddi atkvæði á móti tillögunni. Þó heyra málefni kirkjunnar ekki undir bæinn heldur ríkið. Það skal þó ekki tekið af fulltrúa M-listans að viðkomandi sat hjá við afgreiðslu málsins, reyndar eftir að hafa í atkvæðagreiðslu stuttu áður lýst því yfir af einstakri snilld að það „að sitja hjá þýddi hið sama og að segja já“...
Lesa áframBjarni Ben heimsækir Hugin
Þriðjudaginn 3. febrúar næstkomandi stendur Huginn fyrir opnum fundi með Bjarna Ben. Fundurinn verður haldinn í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins, Garðatorgi 7 og hefst stundvíslega klukkan 20:00.Bjarni mun að lokinni framsögu sinni sitja fyrir svörum. Að loknum fundi verður gestum boðið upp á léttar veitingar og fjörugar umræður.Allir velkomnir!
Hægri - 35 ára afmælisrit
Huginn hefur gefið út nýtt tölublað af Hægri í tilefni af 35 ára afmælis Hugins. Hægt er að nálgast ritið á pdf formi með því að fara inn á http://haegri.is/haegri/Haegri.pdf Ritinu verður einnig dreift í hús í Garðabæ
Huginn fagnar 35 ára afmæli sínu
Huginn, félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ, fagnar í dag 35 ára afmæli sínu. Á stofnfundi félagsins var fyrsti formaður þess kjörinn Smári Hermannsson. Á fundinum var lýst yfir almennri ánægju með nýtt félag og vonast var til þess að félagið yrði langra lífdaga auðið.Áherslumál félagsins hafa jafnan fylgt þjóðfélagslegri umræðu hverju sinni...
PubQuiz í kvöld
Í kvöld, fimmtudaginn 6. nóvember, heldur huginn annað PubQuiz vetrarins. Herlegheitin hefjast klukkan 21:00 í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ, Garðatorgi 7. Spurningahöfundar eru engir aðrir en Hafliði Hjartarson og Ásgeir Einarsson en þeir eru algerir spurningagerðarmeistarar. Boðið verður upp á bjór fyrir þá sem hafa aldur til...
Hádegisverðurinn er aldrei ókeypis
Foreldrar grunnskólabarna í Garðabæ hafa látið í ljós óánægju með þann kostnað sem þau bera vegna skólamáltíða barnanna sinna. Óánægjuraddirnar stafa ekki síst af því að nágrannasveitarfélögin bjóða upp á ódýrari skólamáltíðir með niðurgreiðslum...
Ályktun um „frítt í strætó“
Huginn, félag ungra Sjálfstæðismanna í
Garðabæ, fagnar þeirri ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar að draga sig út úr
verkefninu „frítt í strætó“. Þeirri stefnu skal ávallt framfylgt að
einstaklingar sem nýta sér ákveðna þjónustu skuli bera þungann af kostnaði
hennar sjálfir til að koma í veg fyrir óþarfa skattpíningu á bæjarbúa...
Aðalfundur Hugins
Aðalfundur Hugins, félags ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ, var haldinn í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins við Garðatorg, miðvikudaginn 30. júlí síðastliðinn. Fjöldi fólks mætti á fundinn til að taka þátt í hefðbundnum aðalfundarstörfum. Sigríður Dís Guðjónsdóttir var kjörin formaður félagsins...
Fótboltamót og partý!
Huginn, f.u.s. í Garðabæ stendur fyrir fótboltamóti næstkomandi laugardag, 23. júní. Mótið fer fram á battavöllunum við Flataskóla og hefjast leikar klukkan 15:00. Skráning fer fram hér á hægri.is.Um kvöldið mun Huginn svo bjóða í “Jónsmessupartý” á kaffishúsinu Amokka í Hlíðarsmála í Kópavogi...
Þú ert númer eitt í röðinni!
Sjálfstæðisflokkurinn mun á komandi kjörtímabili fá tækifæri til að spreyta sig í nýjum málaflokkum. Þar ber sérstaklega að nefna heilbrigðismálin. Sjálfstæðisflokknum gefst nú gullið tækifæri að láta reyna á aukið einkaframtak í heilbrigðismálum og tækifæri til þess að sýna þjóðinni fram á mikilvægi einkareksturs og frjáls markaðar...
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.