Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Skráning á SUS-Þing í Hveragerði

4. ágúst 2011

Sambandsþing ungra sjálfstæðismanna fer fram í Hveragerði 26. – 28.
ágúst næstkomandi. Á þinginu verður umræða og afgreiðsla ályktana
málaefnastarfs og ný stjórn og forysta sambandsins kjörin til næstu
tveggja ára. Huginn á, eins og önnur aðildarfélög sambandsins, rétt á
að senda fulltrúa á þingið og skipa varafulltrúa.

Stjórn Hugins óskar því eftir umsóknum frá félagsmönnum sem hafa
áhuga á að sitja þing SUS fyrir hönd félagsins. Þeir sem vilja skrá sig á
þingið og eru félagsmenn í Huginn, eru beðnir að senda tölvupóst á
netfangið victor@haegri.is þar sem koma þarf fram nafn, heimilisfang,
símanúmer og kennitala. Stjórn félagsins mun setja sig í samband við
alla umsækjendur þegar endanlegt fulltrúaval liggur fyrir.

Ef til þess kemur að forgangsraða þarf umsækjendum á þingið verður þeim
sem virkir hafa verið í starfi Hugins og flokksins að undanförnu
veittur forgangur umfram aðra. Þeir sem ekki verða tilnefndir fulltrúar
fá þó sæti varafulltrúa á þinginu.

 

 

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.