Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Ferð í Alþingi

20. október 2007

Föstudaginn 12. október fór Huginn í ferð í alþingi og veittu þingmennirnir Bjarni Benediktsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir hópnum viðtöku. Byrjað var á því að skoða húsakynni Alþingis en að því loknu var haldið á skrifstofur þingmannanna þar sem boðið var upp á veitingar og sköpuðust fróðlegar og skemmtilegar umræður. Þá bættust við þingmennirnir Jón Gunnarsson og Ármann Ólafsson.

Huginsfólk þakkar þingmönnunum fyrir glæsilegar móttökur og skemmtilega ferð.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.