Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Milljarðar renna til manna sem stýrðu Framsókn

16. október 2007

Mbl.is: Gísli Marteinn Baldursson sagði á fundi
borgarstjórnar sem nú stendur yfir að hann vonaðist til þess að REI-
málið svokallaða fengi farsælan endi og að menn hættu að pukrast í því
máli. „Ég vona að allir vilji ljúka þessu máli en stundum hvarflar að
manni að menn vilji það ekki. Vissi borgarfulltrúi Björn Ingi Hrafnsson
ekki að með því að samþykkja samrunann var hann að láta fjölda
milljarða renna til manna sem hafa stýrt Framsóknarflokknum undanfarin
ár,” sagði Gísli Marteinn.

Hann sagði marga
milljarða renna til fyrrverandi varaformanns Framsóknarflokksins,
lögfræðings allra helstu Framsóknartengdu fyrirtækjanna og formanns
fjáröflunarnefndar Framsóknarflokksins. „Vissi Björn Ingi Hrafnsson
ekki hver ætti fyrirtækið Landvar sem er í eigu Helga S. Guðmundssonar,
fjáröflunarmanns númer eitt hjá Framsóknarflokknum,” sagði Gísli
Marteinn.

Hann útskýrði síðan að Landvar ætti 35% í VPK Invest sem á 2,2% í hinu nýja fyrirtæki.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.