Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Bandaríska þingið samþykkir hertar siðareglur

2. ágúst 2007

Vísir.is: Bandaríska þingið samþykkti í dag að herða siðareglur þingmanna með það

að markmiði að minnka áhrif þrýstihópa á þingið. Frumvarpið var

samþykkt níu mánuðum eftir að Demókratar náðu völdum í bandaríska

þinginu í kjölfar hneykslismála sem mörg snertu Repúblikana.

Frumvarpið

gerir ráð fyrir því að ljóstrað verði upp um gæluverkefni þingmanna,

það bannar eftirlaunagreiðslur til þingmanna sem gerst hafa sekir um að

þiggja mútur og skikkar frambjóðendur til að greina frá því hvaðan þeir

þiggja fjárframlög í kosningabaráttu.

Hið yfirgripsmikla

frumvarp var samþykkt með miklum meirihluta atkvæða og er á leið til

undirritunar hjá George W. Bush Bandaríkjaforseta.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.