Mikill fjöldi við minningarathöfn um Einar Odd

Mbl.is: Mikill mannfjöldi var við kveðju- og
minningarathöfn um Einar Odd Kristjánsson, alþingismann, í
Hallgrímskirkju í dag. Einar Oddur varð bráðkvaddur þann 14. júlí sl.
Útför hans verður gerð frá Flateyrarkirkju laugardaginn 28. júlí
klukkan 14:00.
Þeir Geir H. Haarde,
forsætisráðherra, Davíð Oddsson, Seðlabankastjóri, Þorsteinn Pálsson,
ritstjóri Fréttablaðsins, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður BM Vallár,
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, Gunnar J. Birgisson,
bæjarstjóri í Kópavogi og
Ásmundur Stefánsson, ríkissáttasemjari, báru kistuna út úr kirkjunni.
Einar Oddur var þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.
Einar Oddur var 64 ára að aldri og lætur eftir sig eiginkonu, Sigrúnu Gerðu Gísladóttur og þrjú uppkomin börn.
Einar
Oddur fæddist á Flateyri 26. desember 1942, sonur hjónanna Kristjáns
Ebenezersonar skipstjóra og Maríu Jóhannsdóttur símstöðvarstjóra.
Einar
Oddur nam við Menntaskólann á Akureyri. Hann vann sem skrifstofumaður á
árunum 1961-65 og sem póstafgreiðslumaður 1965-68. Hann var
framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar Hjálms hf. 1968-93 og framkvæmdastjóri
Útgerðarfélags Flateyrar 1974-93. Síðar sat hann í stjórnum og var
stjórnarformaður í Hjálmi hf., Vestfirskum skelfiski hf. og Kambi hf.
Einar
Oddur var fyrst kjörinn á þing árið 1995 og var þingmaður Vestfjarða og
síðar NV-kjördæmis allt til dauðadags. Hann hóf ungur afskipti af
stjórnmálum og var formaður Sjálfstæðisfélags Önundarfjarðar 1968-79,
sat í hreppsnefnd Flateyrarhrepps á árunum 1970-82, var formaður
fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Vestur-Ísafjarðarsýslu 1979-90,
formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum 1990-92. Hann
var formaður efnahagsnefndar ríkisstjórnarinnar árið 1988.
Einar
Oddur sat í fjölmörgum stjórnum um ævina. Hann var formaður
Vinnuveitendasambands Íslands 1989-92, sat í stjórn
Atvinnuleysistryggingasjóðs árið 1995 og í stjórn Grænlandssjóðs síðan
2001. Hann sat í stjórn Vinnuveitendafélags Vestfjarða frá 1974. Á
árunum 1983-89 sat hann í varastjórn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
og í stjórn Icelandic Freezing Plant Ltd í Grimsby 1987-89. Hann var
stjórnarformaður Vélbátaútgerðarfélags Ísfirðinga síðan 1984 og í
stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva 1981-96.
Einar
Oddur var sæmdur heiðursmerki Fálkaorðunnar árið 1992 fyrir störf að
félagsmálum, en Einar Oddur var einn aðalhöfundur hinnar svonefndu
þjóðarsáttar.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.