Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

GGE: Undrandi yfir atburðum dagsins

3. júlí 2007

Rúv.is: Framkvæmdastjóri Geysis Green Energy undrast að Hafnarfjörður og
Grindavík taki ekki hæsta boði í eignarhlut í Hitaveitu Suðurnesja.
Ekki kemur til greina að afhenda einkafyrirtæki forráð yfir Hitaveitu
Suðurnesja og lögnum inn á hvert heimili á Reykjanesi, segir Guðbrandur
Einarsson, oddviti minnihlutans í Reykjanesbæ, en bæjarráð fundaði um
málið í kvöld.

Ásgeir Margeirsson, framkvæmdastjóri Geysir Green
Energy, bendir einnig á að verðlagning á vatni og dreifikerfi
rafveituþjónustu sé reglugerðarbundin en raforka sé á
samkeppnismarkaði. En hjá Geysi Green Energy eru menn allt annað en
sáttir við framvindu dagsins.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.