Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Aðsókn að kaffihúsum dregst saman

27. júní 2007

Vísir.is: Dæmi eru um að sala á börum hafi dregist saman um allt að 70 prósent
eftir að reykingarbannið tók gildi síðustu mánaðarmót. Aðstöðuleysi
fyrir reykingarfólk utandyra er helsti orsakavaldur. Starfsfólk segir
þó allt annað líf að að standa vaktir eftir breytinguna.

Það
er ekki bara andrúmsloftið sem hefur breyst á kaffihúsum, börum og
veitingastöðum frá því reykingabannið tók gildi 1. júní, heldur hefur
aðsóknarmynstur viðskiptavinanna einnig breyst.

Kormákur
Geirharðsson veitingamaður á Ölstofunni segir mikla breytingu á virkum
dögum. Mun minna sé um að fólk komi og fái sér drykk eftir vinnu og það
komi einnig seinna um helgar. Sala í miðri viku hafi dregist saman um
tíu til fimmtán prósent.

Heimildir fréttastofu herma að á sumum
börum þar sem ekki er seldur matur, og engin aðstaða er utandyra fyrir
reykingarfólk, hafi sala dregist saman um allt að 70 prósent.

Guðvarður
Gíslason veitingamaður á Apótekinu segir minni aðsókn að kaffihúsi
staðarins, en ekki veitingastaðnum. Jákvæðu breytingarnar séu meðal
annars þær að fjölskyldur fari frekar með börnin út að borða, áður hafi
þær oft snúið við í gættinni þegar þær gengu á reykingarvegg.

Þá
segir hann starfsfólkið, og hann sjálfan hæstánægt með breytinguna þar
sem það geti nú lagst á koddann þegar það kemur úr vinnu, án þess að
fara í sturtu fyrst.

Kormákur varar þó við því að fólk geymi
glös inni á veitingastöðum á meðan það fari út að reykja þar sem
auðvelt sé að lauma ólyfjan í glösin.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.