Fréttir
Sarkozy fyrstur til að bjóða Brown í heimsókn

Mbl.is: Nýr forsætisráðherra Breta, Gordon Brown, er þegar
komin með heimboð upp á vasann. Það er Nicolas Sarkozy, forseti
Frakklands, sem hringdi í Brown í dag, stuttu eftir að hinn síðarnefndi
tók við nýja embættinu. Sarkozy óskaði Brown til hamingju með
forsætisráðherraembættið og óskaði eftir náinni samvinnu.
Haft
er eftir talsmanni Sarkozy að leiðtogarnir sitthvoru megin við
Ermasundið hafi samþykkt að vinna náið saman, sérstaklega að málefnum
Darfur-héraðsins í Súdan. Síðan bauð Sarkozy Brown í heimsókn til
Parísar, en það ku vera fyrsta heimboðið frá þjóðarleiðtoga sem Brown
fær í dag.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.